fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Pressan

Loftsteinn gerði gat á húsþak í Þýskalandi

Pressan
Þriðjudaginn 10. mars 2026 17:30

Myndin er úr safni og tengist frétt ekki beint. Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íbúar í þýsku borginni Koblenz urðu vitni að óvenjulegu atviki á sunnudagskvöld þegar björt eldkúla þaut yfir himininn í norðvesturhluta meginlands Evrópu.

Stuttu síðar kom í ljós að brot úr loftsteini hafði gert gat á þak á íbúðarhúsi í Güls-hverfinu áður en hann staðnæmdist inni í mannlausu svefnherbergi. fréttum þýskra fjölmiðla kemur fram að gatið hafi verið á stærð við fótbolta og urðu skemmdirnar því töluverðar.

Nokkrar aðrar byggingar í nágrenninu munu einnig hafa orðið fyrir minniháttar skemmdum vegna smærri brota sem féllu til jarðar.

Juan Luis Cano, verkfræðingur hjá Evrópsku geimferðastofnuninni, segir við New York Times að miðað við birtuna hafi loftsteinninn líklega verið um einn til þrír metrar í þvermál áður en hann brotnaði í lofthjúpnum.

Steinar af þeirri stærð lenda á jörðinni á nokkurra vikna fresti, en yfirleitt vekja þeir litla athygli þar sem þeir falla oftar en ekki í hafið eða á afskekkt landsvæði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni

„Guð öngþveitis“ stefnir í átt að jörðinni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu

Wagnerhópurinn lifir enn en er nú notaður til að standa fyrir fjölþátta árásum í Evrópu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi

Orðrómar um rússneskt lýðveldi vekja áhyggjur í Eistlandi
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“

„Svörtu ekkjunni“ tókst ætlunarverk sitt í fjórðu tilraun – „Ekki segja neitt við hana“