

Forsala á afmælistónleika Stefáns Hilmarssonar fór fram úr björtustu vonum og seldist nánast upp áður en almenn miðasala átti að hefjast, en áhangendum Stefáns bauðst að skrá sig á forsölulista fyrir nokkrum dögum í gegnum Facebook-síðu hans.
„Ég er innilega þakklátur fyrir viðtökurnar, sem eru sannarlega framar mínum vonum“, sagði Stefán á Facebook-síðu sinni þegar hann greindi frá aukatónleikum í gærkvöldi.
„Það er ekki á vísan að róa með svona lagað, því samkeppni um tíma og athygli fólks í dag er meiri en nokkru sinni. Það yljar mér um hjartarætur að finna að svo margir sýni þessu áhuga. Innan skamms hefst skipulagið fyrir alvöru. Ég skynja að væntingar fólks eru miklar og ég mun reyna að standa undir þeim“.
Skipuleggjendur funduðu í kjölfarið og ákveðið hefur verið að setja á aukatónleika daginn eftir, laugardaginn 27. júní. Ekki verður sérstök forsala á aukatónleikana, heldur verður opnað fyrir miðasölu í dag kl. 10, á sama tíma og almenn miðasla á fyrri tónleikana átti að hefjast.
Tónleikarnir fara því fram föstudaginn 26. júní og laugardaginn 27. júní og hefjast bæði kvöld kl. 20.