
Keppni í Mjólkurbikar karla 2026 hefst á morgun með leik Úlfanna og Hamars á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í Reykjavík.
Næsti leikur er síðan á laugardag, þar sem mætast Þróttur Vogum og Grótta, og keppnin fer svo á fullt í næstu viku með fjölmörgum leikjum í 1. umferð.
Dregið verður í 32-liða úrslit í Mjólkurbikar karla þriðjudaginn 24. mars í höfuðstöðvum KSÍ.
Keppni í Mjólkurbikar kvenna hefst 19. apríl með níu leikjum samkvæmt drögum að niðurröðun.