
Yfirmaður knattspyrnumála hjá Arsenal, Andrea Berta, var lykilmaður í því að félagið samdi við Viktor Gyokeres síðasta sumar.
Samkvæmt The Athletic sannfærði Berta knattspyrnustjórann Mikel Arteta um að velja Gyokeres fram yfir Benjamin Sesko, sem síðar gekk til liðs við Manchester United.

Berta taldi Sesko ekki nógu góð kaup miðað við verðið á honum, en var þó tilbúinn að gefa eftir ef Arteta hefði þrýst á það að fá hann inn.
Hvorugur framherjinn hefur beint slegið í gegn á leiktíðinni en þó hafa báðir átt fínar rispur.