fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Ársreikningur Víkings vekur mikla athygli – Gríðarlegt tap á síðasta ári en staðan sterk

433
Fimmtudaginn 5. mars 2026 11:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víkingur spennti bogann hressilega til að verða Íslandsmeistari í fyrra. Þetta kemur fram í ársreiknigi félagsins. Samkvæmt rekstrarreikningi nam tap ársins 78,6 millj. kr. (2024: hagnaður 403,8 millj. kr.). Eigið fé í árslok nam 393,7
millj. kr. (2024: 474,6 millj. kr.) samkvæmt efnahagsreikningi.

Tekjur knattspyrnudeildar Víkings voru 622 milljónir en voru tæpur 1,1 milljarður árið á undan þar sem meistaraflokkur karla fór langt í Sambandsdeildinni.

Tap Víkings vekur nokkra athygli þar sem félagið seldi leikmenn fyrir 162 milljónir en ná samt ekki að reka deildina réttu megin við núllið. Staða deildarinnar er þó sterk eftir góðan árangur síðustu ár og eigið fé eins og fram hefur komið tæpar 400 milljónir.

Meira:
Rosaleg skuldastaða í Eyjum vekur enn á ný athygli – Tekjur jukust hressilega á milli ára
Rosaleg tekjuaukning í Vesturbæ með tilkomu Óskars Hrafns – Útgjöld jukust um 120 milljónir á síðasta ári
Jafnvægi í rekstrinum í Úlfarársdal: Tekjur lækkuðu og útgjöld jukust til muna – Samt var hagnaður á rekstri
Svart ský yfir rekstrinum í Garðabæ: Laun hækkuðu rosalega – Tapið á síðasta ári yfir 80 milljónir
Blómlegur rekstur á Hlíðarenda: Aukning í tekjum og góður hagnaður – Laun hækka talsvert á milli ára
Góðæri á Akranesi: Góður hagnaður þrátt fyrir miklar launahækkanir á milli ára

Gísli Gottskálk Þórðarson, Ari Sigurpálsson og Danijel Dejan Djuric voru allir seldir í atvinnumennsku á síðasta ári.

Launakostnaður Víkinga hækkaði á milli ára og var 379 milljónir í fyrra en var 342 milljónir árið á undan. Félagið keypti meðal annars Gylfa Þór Sigurðsson á síðasta ári. Víkingur keypti leikmenn fyrir 46 milljónir á síðasta ári en talað hefur verið um að Gylfi hafi kostað 20 milljónir.

Deildin á tæpar 180 milljónir í verðbréfaeign en sú tala var 332 milljónir árið á undan. Skuldir deildarinnar eru 33 milljónir og lækka á milli ára. Staða Víkings er því mjög sterk og miklar líkur á að tekjur aukist hressilega á þessu ári þar sem liðið varð Íslansmeistari og fær því nokkuð greiða leið í Evrópukeppnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Búinn að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford

Búinn að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho

Svona gæti byrjunarklið Real Madrid litið út undir stjórn Mourinho
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða

Ensk stórlið á eftir táning sem kostar fimm milljarða
433Sport
Í gær

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Í gær

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni

Þessir hafa verið bestir í Bestu deildinni