fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fókus

Hryllingsmyndagoðsögn með krabbamein – „Engar áhyggjur, ég er harður tíkarsonur“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 3. mars 2026 12:30

Bruce Campbell greinir frá þessu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn og hryllingsmyndagoðsögnin Bruce Campbell er með krabbamein. Hann biður fólk að hafa ekki áhyggjur af sér því þó meinið sé ólæknandi þá sé hægt að meðhöndla það.

Hinn 67 ára gamli Campbell á yfir hálfrar aldar feril í kvikmyndum að baki. Hann er þekktastur fyrir að leika persónuna Ash í seríunni Evil Dead, sem hefur verið í gangi síðan árið 1981. Fyrir rúmum áratug voru einnig sýndir samnefndir sjónvarpsþættir sem Campbell lék í.

Hann hefur einnig leikið hlutverk í fjölmörgum öðrum hryllingsmyndum, einkum ódýrum B-myndum á borð við Maniac Cop, Crimewave, Intruder og Within the Woods sem og að tala inn á tölvuleiki. Þá er hann vinsæll gestur á ýmsar hryllingsmynda og myndasöguráðstefnur út um allan heim.

Campbell greinir nú frá því að hann muni taka sér veikindaorlof út af krabbameini sem hann greindist með.

„Mér þykir miður ef þetta er áfall, þetta var áfall fyrir mig líka,“ segir Campbell. Hann þurfi meðal annars að hætta við nokkrar ráðstefnur sem hann var bókaður á. „Ég er ekki að reyna að snapa samúð eða fá ráðgjöf. Ég vildi bara birta þessar upplýsingar ef ske kynni að falskar upplýsingar færu á flakk (sem mun gerast). Engar áhyggjur, ég er harður tíkarsonur og ég hef mikinn stuðning þannig að ég býst við að vera hér áfram um sinn.“

Greinir hann ekki frá því hvers kyns meinið er. Það sé ólæknandi en hægt að meðhöndla það og lifa með því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Fókus
Í gær

Vikan á Instagram: „Var með smá fordóma fyrst sem ég skammast mín fyrir núna“

Vikan á Instagram: „Var með smá fordóma fyrst sem ég skammast mín fyrir núna“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli

Breski stórleikarinn sýndi sitt rétta eðli þegar ungur meðleikari varð fyrir áfalli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“

Urðar yfir nýlátinn leikara – „Hann var heigull sem níddist á mér“