

Íslandsvinurinn og tónlistarmaðurinn Justin Timberlake hefur höfðað mál gegn bænum Sag Harbor á Long Island í tilraun til að koma í veg fyrir að myndefni úr líkamsmyndavél frá alræmdri handtöku hans fyrir ölvunarakstur verði birt opinberlega.
Samkvæmt dómsskjölum sem Page Six greinir frá vill Timberlake fá úrskurð frá dómara í hæstarétti Suffolk-sýslu um að koma í veg fyrir birtingu myndbandsins.
Upptakan, sem lögreglumenn tóku upp við umferðarstöðvun og handtöku Timberlake í júní 2024, er nú hluti af beiðni sem fjölmiðlar lögðu fram samkvæmt upplýsingalögum (FOIA).
Í málssókn heldur Timberlake því fram að í myndbandinu sé hann sé sýndur „í mjög viðkvæmu ástandi í samskiptum við lögreglu.“ Í dómsskjölunum er einnig fullyrt að líkamsmyndavélin hefði náð „nákvæmum smáatriðum“ um „útlit, framkomu, málflutning og hegðun“ Timberlake á meðan hann var í edrúmennskuprófi, handtöku og fangelsun.
Michael Del Piano, lögmaður Timberlake, segir að birting myndbandsins myndi valda alvarlegum og óbætanlegum skaða á persónulegu og faglegu orðspori Timberlake og gera hann að aðhlátursefni og áreitni almennings. Sagði lögmaðurinn birtingu myndbandsins ekki þjóna lögmætum almannahagsmunum og að birting þess væri óréttmæt innrás í friðhelgi einkalífs Timberlake.
Timberlake er sækjandi í málinu og Þorpið Sag Harbor, lögreglan í Sag Harbor og lögreglustjórinn Robert Drake eru skráðir verjendur.
Timberlake var handtekinn 18. júní 2024 eftir að hann hunsaði stöðvunarmerki og sveigði á milli akreina á BMW-bíl sínum, en Timberlake hafði áður varið kvöldinu með vinum sínum. Timberlake hélt frá fram að hann hefði aðeins drukkið einn martini, en lögreglumaðurinn sem stöðvaði hann sagði að Timberlake hefði fallið á edrúmennskuprófi á vettvangi.
Timberlake sýndi einnig merki um lélegt jafnvægi og vanhæfni til að fylgja fyrirmælum, samkvæmt lögregluskýrslu. Hann virtist hafa blóðhlaupin og gljáandi augu á myndinni sem tekin var af honum. Heimildir sögðu Page Six á þeim tíma að lögreglumaðurinn sem stöðvaði Timberlake „væri svo ungur að hann vissi ekki einu sinni“ hver Timberlake væri.
Timberlake neitaði sök um akstur undir áhrifum áfengis eftir handtöku sína, en samþykkti að játa sök um skerta hæfni undir áhrifum áfengis, vægari og ekki refsiverð ákæra.
Hann var samt sem áður dæmdur til að inna af hendi 25 klukkustunda samfélagsþjónustu og greiða 500 dala sekt auk 260 dala aukagjalds. Hann var einnig sviptur ökuréttindum í 90 daga.
„Það sem ég vil segja við alla sem horfa og hlusta, jafnvel þótt þið hafið fengið ykkur einn drykk, setjist ekki undir stýri bíls,“ sagði Timberlake á blaðamannafundi eftir að dómur féll 13. september 2024. „Það eru svo margir möguleikar. Hringdu í vin, taktu Uber, það eru mörg ferðaforrit, taktu leigubíl,“ bætti hann við. „Þetta eru mistök sem ég gerði, en ég vona að hver sem er að horfa og hlusta núna geti lært af þessum mistökum.“