

„Kæra Deidre. Ég er orðin yfir mig ástfangin af dásamlegum manni en það sem hann veit ekki er að ég varð nýlega ólétt af barni annars manns. Ég veit ekki hvernig ég á að segja honum það,” segir konan.
Hún segir að hún og þessi tiltekni maður, sem er 35 ára, hafi byrjað að hittast fyrir þremur mánuðum og sambandið þróast í mjög spennandi átt.
„Við kynntumst í trúlofunarveislu sameiginlegs vinar og strax í fyrsta samtalinu fann ég að hann var öðruvísi. Hlutirnir þróuðust eðlilega á milli okkar og hann gerir mig hamingjusama á hátt sem ég hef aldrei upplifað áður. Sambandið okkar er orðið alvarlegra og leyndarmálið um meðgönguna étur mig að innan.”
Konan segir að stuttu áður en þau fóru á sitt fyrsta stefnumót hafi hún bundið endi á stutt ástarævintýri sem hún átti í með öðrum manni. Svo óheppilega vildi til að nokkrum dögum síðar komst hún að því hún væri ólétt og faðirinn gæti ekki verið neinn annar en þessi fyrrverandi rekkjunautur.
„Faðir barnsins vill ekki taka þátt í uppeldinu og ég hef ákveðið að ala barnið upp ein. Ég var enn að reyna að melta þetta allt þegar þessi nýi maður kom inn í líf mitt og ég vildi ekki fæla hann frá áður en við hefðum jafnvel byrjað.”
Konan segir að vikum saman hafi hún sveiflast á milli þess að segja honum sannleikann eða ekki, en aldrei fundið kjarkinn og því sagði hún ekkert. „Nú er ég gengin næstum fjóra mánuði og brátt fer óléttan að sjást almennilega.“
Hún bætir við að hún sé farin að ganga í víðum fötum, forðast nánd og fær kvíðahnút í magann í hvert sinn sem kærastinn talar um framtíðina.
„Hann hefur nefnt að hann vilji eignast börn einhvern daginn og ég sit bara og kinka kolli – líður eins og algjörum svikara. Mér þykir mjög vænt um hann og vil ekki byggja samband á lygi, en ég er skelfingu lostin um að hann gangi í burtu um leið og hann kemst að sannleikanum. Hvernig á ég að segja honum þetta án þess að eyðileggja allt?”
„Þú berð á herðum þér mikla tilfinningalega byrði og það er skiljanlegt að þú sért hrædd um að missa eitthvað sem þér finnst vera einstakt. En sannleikurinn er sá að því lengur sem þú bíður, þeim mun erfiðara verður þetta.
Þetta eru ekki litlar fréttir og hann á skilið heiðarleika áður en samband ykkar fer enn dýpra. Veldu rólegt augnablik, sestu niður með honum og segðu honum frá þessu.
Útskýrðu tímasetninguna, að meðgangan hafi átt sér stað áður en þið kynntust, og hvers vegna það tók þig svona langan tíma að segja frá. Vertu undirbúin fyrir að hann verði hissa.
Hann gæti þurft tíma til að melta fréttirnar. Ef hann ákveður að fara, eins sárt og það yrði, er betra að vita það núna en að halda einhverju áfram sem byggir á leynd.”