fbpx
Fimmtudagur 05.mars 2026
Fókus

Eva Laufey segir fermingarbörn kaupa sterk krem og sýrur – „Við höfum smá áhyggjur af þessu“

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 3. mars 2026 12:30

Eva Laufey bendir á uggvænlega þróun.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eva Laufey Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaupa, segir að verslunin hafi áhyggjur af notkun unglinga á sterkum kremum og sýrum sem ætluð eru eldra fólki. Mikilvægt sé að opna umræðuna um þetta og að láta krökkum líða vel í eigin skinni.

„Unga fólkið er í auknum mæli að kaupa meira af snyrtivörum og sterkari vörum,“ sagði Eva Laufey í viðtali í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Allt of sterk krem og sýrur

Benti hún á að Hagkaup sé leiðandi á snyrtivörumarkaði og í hennar störfum hafi hún tekið eftir þeim tískusveiflum sem eru í gangi og hafa áhrif á unga fólkið og þeirra kauphegðun. Unglingar séu að kaupa efni sem ætluð séu eldra fólki, svo sem sýrur og sterk krem. Á Norðurlöndum séu stundum aldurstakmörk á slíkar vörur. Þá hafi hún einnig heyrt af því að fólk sé farið að sprauta efnum undir húðina.

„Það eru miklar kröfur og ég þekki unglinga sem eru á þessum aldri og eru að fylgjast með samfélagsmiðlum. Þau eru að fá svo misvísandi skilaboð út um allt. Hvernig þú átt að líta út, hvað þú átt að gera til að yngjast af því að við erum alltaf að tala um það. Hvernig það eigi að halda í þennan ljóma, þennan unga ljóma sem unga fólkið er með,“ sagði Eva.

Húðrútínur í sjö eða átta skrefum

Þetta sé aldurinn sem krakkarnir séu að finna sig á og að þau séu mörg hver óörugg með sig. Áhrifavaldar birti margar myndir af sér og vörur sem verið er að auglýsa. Til dæmis áhrifavaldar á TikTok sem sýna húðrútínu í sjö eða átta skrefum.

„Þau sjá einstaklinga á samfélagsmiðlum sem þau líta upp til og eru að sýna frá vörum. Rétt eins og ég verð fyrir áhrifum þegar fólk sýnir mér spennandi uppskriftir. Ég kaupi allt í þá uppskrift. Þetta er nákvæmlega það sama en bara á annan hátt. Við höfum smá áhyggjur af þessu,“ sagði Eva.

Þurfa ekki neitt

Hefur Hagkaup því undanfarin ár boðið upp á svokölluð fermingarkvöld þar sem unglingum og forráðamönnum þeirra er boðið upp á gjaldfrjálsa fræðslu frá förðunarfræðingi um húðumhirðu.

„Okkur finnst það vera samfélagsleg skylda okkar sem svona stór aðili á markaði að fræða börnin, unglinga og foreldra,“ sagði hún. „Þú þarft ekki neitt. Við erum ekki að ota neinu að börnunum. Við erum að biðja krakkana um að nota sem minnst. Húðin þeirra er svo flott. Það er eðlilegt að vera með bólur og það er eðlilegt að áferðin á húðinni sé ekki sú sama á öllum, þetta er stærsta líffærið okkar. Það er lifandi.“

Hefur verslunin fengið góðar undirtektir eftir þessi kvöld undanfarin ár. Að hennar mati skiptir umræðan um þetta miklu máli. Það er að unglingsstrákum og stelpum líði vel í eigin skinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör

Mikil ólga vegna ákvörðunar RÚV – Edda Björgvins vill fá svör
Fókus
Fyrir 3 dögum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
Fókus
Fyrir 5 dögum

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“

Misstu meira en bara kílóin á þyngdarstjórnunarlyfjunum – „Þarna dreg ég línuna“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung

Fyrirsætan fékk ekki líftryggingu því hún er of þung
Fókus
Fyrir 6 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr

Íslensku kraftaverka tvíburastelpurnar sem fæddust aðeins rétt um 1000 gr