fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Matur

Kalda salsað hennar Kötlu hentar í allar veislur – „Þetta fer aldrei í nesti!“

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. mars 2026 14:05

Katla Hreiðarsdóttir. Mynd: DV/KSJ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katla Hreiðarsdóttir, eigandi Systur og makar, deildi uppskrift að kaldri salsaídýfu á Instagram. Réttur sem er tilvalinnfyrir saumaklúbbinn og veislurnar eða kósíkvöldin heima með fjölskyldunni. Einfalt og einstaklega gott!

„Köld salsa, þessi uppskrift er víða og svo sannarlega ekki mín hugarsmíði, heldur eitthvað sem ég varð húkkt á eftir að Arna mætti með hana í Arcanapartýið síðasta sept. Þetta er brilliant í veislur, í saumaklúbbinn, á taco veisluborðið eða eins og mér finnst best: í stórri skál með nachos á kantinum og matskeið og með óbilandi trú á að restin fari í nesti. Þetta fer aldrei í nesti!“

Segir Katla að það megi leika sér með uppskriftina eftir því hvað er til í eldhússkápunum, en hennar uppskrift sé sirka svona:

1/2dós af rjómaosti
1 krukka af salsasósu
þeyta saman í vél eða í höndum
sáldra svo yfir:
iceberg
rauðri papriku
kirsuberjatómötum
rifnum osti eða þessum ódýra
blaðlauk (eða vorlauk eða rauðlauk)
og fersku kóríander. (Ef þú finnur ilmvatnsbragð af því þá er eitthvað að þér en þú mátt þá sleppa.) Ég er að sjálfsögðu team kóríander og hef heyrt að það lið sé betra.

Annars má bragðbæta eins og hver vill og þess vegna bæta við próteini: hakki, kjúkling, baunum, bæta við ferskum sveppum, lime safa, jalapeno eða því sem hugurinn girnist!

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Systurogmakar (@systurogmakar)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
19.07.2025

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi

Ofnbakaður brie með hnetum, trönuberjum og hunangi
Matur
17.07.2025

Sumarlegt maíssalat

Sumarlegt maíssalat
Matur
10.07.2025

Hollustudessert Rakelar Maríu – „Ilmurinn, OMG! Vá hvað þetta er gott“

Hollustudessert Rakelar Maríu – „Ilmurinn, OMG! Vá hvað þetta er gott“
Matur
16.06.2025

ÓX hlýtur græna Michelin stjörnu – Hosiló bætist við staði sem Michelin mælir með

ÓX hlýtur græna Michelin stjörnu – Hosiló bætist við staði sem Michelin mælir með