fbpx
Fimmtudagur 16.apríl 2026
Fókus

Giftu stjörnurnar sig á laun? – Stílisti kjaftaði af sér á rauða dreglinum

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. mars 2026 11:30

Zendaya og Tom Holland

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að leikaraparið Zendaya og Tom Holland séu orðin hjón og hafi gift sig á laun.

Law Roach, sem lengi hefur verið stílisti leikkonunnar, greindi frá þessu í samtali við Access Hollywood á rauða dreglinum fyrir Actors Awards sem fram fóru í gær.

„Brúðkaupið hefur þegar átt sér stað,“ sagði hann. „Þið misstuð af því.“

Í síðasta mánuði fóru sögusagnir á kreik um að parið hefði gifst í leyni eftir að Zendaya sást bera gullhring á vinstri baugfingri sínum í stað 5 karata demants. Sögur um trúlofun fóru á flug eftir að Zendaya hún sást bera demantshring á vinstri baugfingri sínum á meðan hún gekk rauða dregilinn á Golden Globe verðlaunahátíðinni árið 2025.

Holland bað hennar milli jóla og gamlárskvölds 2024 eftir að parið fékk sér samsvarandi húðflúr. Heimildarmaður sagði þá að Zendaya „hafði ekki hugmynd“ um að Holland myndi biðja hennar, en að parið hefði „rætt hjónaband í gegnum árin.“ „Þau meta bæði friðhelgi einkalífs síns mikils, svo Tom vildi halda bónorðið leyndu líka.“

Heimildarmaðurinn sagði einnig að Holland hefði beðið foreldra Zendaya  um leyfi áður en hann bað hennar.

Parinu tókst að halda sambandi sínu leyndu lengi. Sambandið hófst árið 2017 en þau opinberuðu það ekki fyrr en árið 2021.

Síðasta sumar sagði Roach að parið hefði ekki enn hafið brúðkaupsskipulagningu vegna annríkis Zendaya. „Við höfum tíma,“ stríddi Roach og bætti við: „Við höfum mikinn tíma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Í gær

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Afrika Bambaataa er látinn

Afrika Bambaataa er látinn
Fókus
Fyrir 6 dögum

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn