fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Pressan

Læknir segir þetta ástæðuna fyrir að þú átt að drekka vatn áður en þú færð þér morgunkaffið

Pressan
Laugardaginn 7. mars 2026 13:30

Það er margvíslegur ávinningur sem fylgir því að drekka kaffi. Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Morgunrútínurnar eru mikilvægar og margir huga vel að þeim í tengslum við að lifa heilsusamlegu lífi. Eitt af því sem vert er að hafa í huga að sögn læknis er að drekka vatn áður fyrsti kaffibollinn er borinn að munninum.

Þetta kemur fram í umfjöllun El Economista sem hefur eftir Francisco O. Rosero, lækni, að það sé mjög skynsamlegt að drekka eitt vatnsglas áður en fyrsti kaffibollinn er drukkinn.

Ástæðan er að eftir nóttina glímir líkaminn oft við smávegis vökvaskort og vatn getur svo sannarlega hjálpað til við að koma jafnvægi á vökvabúskapinn á nýjan leik.

Rosero sagði það að drekka eitt vatnsglas geti undirbúið líkamann betur fyrir koffínið. Hann sagði að maginn sé viðkvæmari á morgnana því slímhimnan hefur ekki fengið mat eða drykk klukkustundum saman og kaffið eykur magasýruframleiðsluna og það er ekki gott fyrir viðkvæma slímhimnu. Það að drekka kaffi getur því valdið bakflæði eða magaverkjum, þetta á líka við um fólk sem þolir venjulega kaffi vel.

Hann ráðleggur fólki einnig að drekka kaffi án mjólkur og sykurs því það sé betra fyrir magann og blóðsykurinn.

Kaffi er ekki vandamál í sjálfu sér, margar rannsóknir hafa sýnt fram á hollustu þess ef það er drukkið í hóflegu magni.

Rosero er alls ekki að segja fólki að hætta að drekka kaffi, heldur bara að breyta því í hvaða röð það drekkur kaffi og vatn á morgnana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald

Umfangsmiklar aðgerðir gegn trúarsamtökum sem kenna sig við ljós og frið – Ásakanir um kynferðisbrot, nauðungarhjónaband og þrælahald
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör

Á yfir höfði sér þunga refsingu fyrir að sleikja rör
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi

Leikarinn dæmdur í lífstíðarfangelsi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“

Varalesari varpar ljósi á viðvörun Trumps til Karls – „Við ræðum þetta síðar“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var

Var meðvitundarlaus dögum saman – Segir frá hvernig upplifun það var
Pressan
Fyrir 5 dögum

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn

Leiðbeiningar til kvenna – Svona sleppurðu við að elda matinn