fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
433Sport

Tíu lærisveinar Freys töpuðu naumlega – Evrópuvegferðinni lokið í bili

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frábærri vegferð Freys Alexanderssonar og hans lærisveina í Brann í Evrópudeildinni lýkur í umspilinu, en liðið tapaði gegn Bologna í kvöld.

Ítalska liðið vann fyrri leikinn í Noregi 0-1 og því á brattann að sækja. Verkefnið varð enn strembnara þegar Daninn Jacob Lungi Sorensen fékk rautt spjald á 37. mínútu og Brann varð manni færra. Dómurinn var heldur harður.

Liðið gafst ekki upp en það var Joao Mario sem skoraði eina mark leiksins fyrir Bologna eftir um tíu mínútur af seinni hálfleik. Lokatölur 1-0 og 2-0 samanlagt.

Jón Dagur Þorsteinsson og Kristall Máni Ingason byrjuðu báðir fyrir Brann, en Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru enn á meiðslalistanum.

Nottingham Forest tapaði 1-2 gegn Fenerbahce á heimavelli, en það kom ekki að sök eftir 0-3 sigur á útivelli í fyrri leiknum.

Úrslit kvöldsins
Bologna 1-0 Brann (2-0 samanlagt)
Celta Vigo 1-0 PAOK (3-1 samanlagt)
Nottingham Forest 1-2 Fenerbahce (4-2 samanlagt)

Framlenging er nýhafin í leik Genk og Dinamo Zagreb.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Í gær

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola

Bournemouth búið að finna arftaka Iraola
433Sport
Í gær

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu

Staðfestir að Saka verði ekki með gegn City – Fleiri leikmenn í óvissu
433Sport
Í gær

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Í gær

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra