fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Íslandsvinur dregst inn í fjaðrafokið í kringum Beckham-fjölskylduna – Sonurinn nú sagður æfur yfir þessu

433
Mánudaginn 16. febrúar 2026 13:30

Brooklyn Beckham og Nicola Peltz. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brooklyn Beckham virðist hafa brugðist harkalega við ummælum vinar fjölskyldu sinnar, Íslandsvinarins Gordon Ramsay, um deilur hans við foreldra sína.

Brooklyn, sem er elsti sonur David og Victoriu Beckham, sakaði foreldra sína nýlega um að reyna að grafa undan hjónabandi hans og Nicolu Peltz í yfirlýsingu á Instagram. Hann hélt því fram að foreldrar hans hefðu reynt að eyðileggja sambandið og dreift lygasögum í fjölmiðla. Málið hefur stolið forsíðunum í margar vikur.

Gordon Ramsay
Mynd: Getty

Ramsay, sem hefur lengi verið náinn fjölskyldunni, tjáði sig um málið í viðtali og sagðist bera mikla virðingu fyrir því að Brooklyn vildi standa á eigin fótum. Hann bætti þó við að mikilvægt væri að muna hvaðan maður kæmi og kunna meta foreldra sína, enda kæmi sá dagur að þeir yrðu ekki lengur til staðar.

Skömmu eftir að ummælin birtust virðist Brooklyn hafa hætt að fylgja Ramsay, sem er mikill aðdáandi Íslands og kemur oft hingað, á Instagram. Hann fylgdi áður bæði Ramsay, eiginkonu hans og börnum þeirra, en nafnið er nú horfið af fylgjendalista hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“