fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fleiri ákærur koma upp – Er nú sakaður um alls fimm nauðganir

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 12:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi leikmaður Arsenal, Thomas Partey, hefur verið ákærður fyrir tvær nauðgunir til viðbótar samkvæmt tilkynningu frá bresku saksóknarayfirvöldunum (CPS).

Partey hefur áður komið fyrir dóm þar sem hann neitaði sök í máli sem snýr að því að hafa nauðgað tveimur konum og beitt þriðju konu kynferðisofbeldi. Réttarhöld í því máli eiga að fara fram í nóvember.

Í nýrri yfirlýsingu CPS kemur fram að nýju ákærurnar tengist öðru máli og meintum brotum frá árinu 2020. Um er að ræða sérstaka rannsókn sem lögreglan í London (Metropolitan Police) hefur unnið að. Samkvæmt saksóknurum voru þær ásakanir fyrst tilkynntar í ágúst á síðasta ári.

Ásakanirnar sem Partey hefur áður neitað tengjast atvikum sem áttu að hafa gerst árin 2021 og 2022, þegar hann var lykilleikmaður hjá Arsenal. Hann var formlega ákærður fjórum dögum eftir að samningur hans við félagið rann út í júní.

Partey, sem er 32 ára, leikur nú með Villarreal á Spáni. Skilorð hans koma ekki í veg fyrir að hann spili knattspyrnu, en honum ber að láta lögreglu vita með sólarhringsfyrirvara um utanlandsferðir og má ekki hafa samband við kærendur.

Talsmaður CPS sagði að Partey væri nú ákærður fyrir alls fimm nauðganir og eitt kynferðisbrot gegn þremur konum, auk nýju ákæranna sem tengjast einni konu til viðbótar. Hann á að mæta fyrir dóm í Westminster 13. mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Í gær

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi

Southgate hefur engan áhuga á slíku starfi
433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna