fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Ronaldo hættur í verkfalli og spilar á föstudag

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 20:37

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo er væntanlegur aftur til leiks með Al-Nassr á föstudag, aðeins nokkrum dögum eftir að hafa neitað að spila með liðinu.

Portúgalska stórstjarnan, sem er orðin fertug, hefur samkvæmt fréttum verið ósáttur við fjárhagslegan stuðning félagsins samanborið við önnur lið sem rekin eru af Sádi-arabíska fjárfestingarsjóðnum.

Ronaldo var mættur til æfinga í dag.

Óánægjan á að hafa leitt til þess að Ronaldo tók ekki þátt í sigri Al-Nassr gegn Al-Riyadh fyrr í vikunni. Framherjinn hefur verið að velta framtíð sinni fyrir sér vegna stöðunnar.

Yfirmenn félagsins eru þó bjartsýnir á að hann snúi aftur og spili gegn Al-Ittihad. Al-Nassr er aðeins einu stigi á eftir toppliði deildarinnar og bindur miklar vonir við að Ronaldo leiði liðið í titilbaráttu.

Ronaldo hefur átt gott tímabil, skorað 18 mörk í 22 leikjum og aðeins farið markalaus af velli í fjórum deildarleikjum. Hann var hins vegar ósáttur þegar aðeins einn ungur leikmaður var keyptur í janúarglugganum þrátt fyrir óskir þjálfarans um fleiri styrkingar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan