fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Þetta er upphæðin sem það kostar að losa Ronaldo frá Sádí Arabíu – Er í fýlu og gæti farið í sumar

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 4. febrúar 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cristiano Ronaldo er sagður íhuga að yfirgefa Al-Nassr í sumar, samkvæmt portúgölskum miðlum. Möguleg endurkoma til Evrópu eða félagaskipti til MLS-deildarinnar í Bandaríkjunum eru nefnd sem valkostir.

Ronaldo, sem er fertugur og launahæsti knattspyrnumaður sögunnar með samning upp á um 488 þúsund pund á dag, er sagður ósáttur við hvernig Saudi Public Investment Fund (PIF) hefur stýrt fjármálum félagsins.

Hann telur Al-Nassr ekki hafa fengið sama stuðning á leikmannamarkaðnum og keppinautar.

PIF á meirihluta í fjórum stórliðum í deildinni og hefur fjármagnað komu margra stórstjarna. Al-Hilal er nú stigi ofar en Al-Nassr í deildinni og fékk nýlega Karim Benzema til liðs við sig.

Samkvæmt fréttum hóf Ronaldo eins konar verkfall í vikunni og var fjarverandi í 1-0 sigri á Al-Riyadh. Hann er sagður með um 50 milljóna evra klásúlu í samningi sínum, en á 18 mánuði eftir af honum. Óvíst er hvort félög séu tilbúin að virkja hana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun
433Sport
Fyrir 2 dögum

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan