fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Fjölmargar nektarmyndir birtust óvart í Epstein-skjölunum

Pressan
Mánudaginn 2. febrúar 2026 11:30

Er Jeffrey Epstein virkilega á lífi?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur sætt töluverðri gagnrýni eftir að í ljós kom að fjölmargar nektarmyndir og persónugreinanlegt efni var að finna í Epstein-skjölunum sem birt voru á föstudag.

Í pakkanum sem gerður var opinber á föstudag var meðal annars að finna þrjár milljónir blaðsíðna, 2.000 myndbönd og 180 þúsund ljósmyndir.

New York Times eyddi dágóðum tíma í að fara yfir skjölin og segir í umfjöllun miðilsins að við yfirferðina hafi fundist tæplega 40 nektarmyndir úr einkasafni Epsteins. Myndirnar voru birtar óblörraðar og mátti bæði sjá andlit og nakta líkama að minnsta kosti sjö ungra kvenna eða mögulega stúlkna á unglingsaldri.

Í frétt New York Times kemur fram að myndirnar hafi virst teknar á stöðum sem tengjast Epstein, meðal annars á einkaeyju hans.

New York Times hafði samband við dómsmálaráðuneytið á föstudag og ítrekaði ábendingar sínar daginn eftir. Hófust starfsmenn þá handa við að fjarlægja eða hylja umræddar myndir. Upplýsingafulltrúi ráðuneytisins sagði að unnið væri að því allan sólarhringinn að bregðast við ábendingum.

Þolendur og talsmenn þeirra segja mistökin ráðuneytisins alvarleg.

Annie Farmer, sem hefur borið vitni um að Epstein og Ghislaine Maxwell hafi misnotað hana á unglingsárum, lýsti birtingunni sem „afar truflandi“ og sagði hana hafa grafið undan trausti sínu til þess að stjórnvöld verndi þolendur.

Lögmaðurinn Brittany Henderson, sem fer með mál konu sem var nafngreind opinberlega í skjölunum í fyrsta sinn, kallaði mistökin „viðbjóðsleg“ og gagnrýndi það sem hún sagði bera vott um verulegt kæruleysi í garð fórnarlamba Epsteins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin

Pútín horfir magnvana á nánustu bandamenn sína missa völdin
Pressan
Fyrir 2 dögum

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda

Stærsti kakóframleiðandi heims stendur frammi fyrir miklum vanda
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan
Pressan
Fyrir 2 dögum

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessi merki um Parkinsonssjúkdóminn þekkir þú kannski ekki

Þessi merki um Parkinsonssjúkdóminn þekkir þú kannski ekki
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum