fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Íhuga alvarlega að reka De Zerbi eftir vonbrigði vikunnar

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 30. janúar 2026 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Framtíð Roberto De Zerbi hjá Marseille er sögð í mikilli óvissu eftir dramatískt brotthvarf liðsins úr Meistaradeild Evrópu í vikunni, samkvæmt frönskum miðlum.

Marseille tapaði 3-0 gegn Club Brugge á miðvikudagskvöld og féll úr keppni á markatölu, þrátt fyrir að hafa lengi litið út fyrir að tryggja sér sæti í umspili. Úrslit annarra leikja fóru gegn félaginu og Benfica skaust upp fyrir þá, meðal annars eftir að markvörðurinn Anatoliy Trubin skoraði mark með skalla gegn Real Madrid undir lok leiks.

RMC Sport greinir frá því að stjórnendur Marseille ræði nú möguleikann á að rifta samningi De Zerbi, jafnvel fyrir næsta leik liðsins um helgina.

Íþróttastjórinn Medhi Benatia gagnrýndi leikmenn liðsins harðlega eftir tapið og sagði frammistöðuna óásættanlega. H

ann krafðist þess að leikmenn, þar á meðal Mason Greenwood, axli ábyrgð. Marseille er sem stendur í þriðja sæti frönsku deildarinnar, en pressan á þjálfarann fer sívaxandi eftir vonbrigði vikunnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun
433Sport
Í gær

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan