

Tilnefningar til Óskarsverðlaunanna voru kynntar í gær. Norska myndin Sentimental Value (Affeksjonsverdi) )hlaut þar níu tilnefningar, þar á meðal sem besta mynd. Leikkonan Inga Ibsdotter Lilleaas (37) er tilnefnd fyrir besta leik í aukahlutverki sem dóttirin Agnes Borg Pettersen.
Inga var einnig tilnefnd fyrir hlutverkið á Golden Globes og Critics Choice, og hlaut tvenn verðlaun fyrir í fyrra hjá New York Film Critics Online og National Board of Reviews Online á verðlaunahátíðinni í Cannes.
Við ætlum að sjálfsögðu að eigna okkur þessa hæfileikaríku og glæsilegu leikkonu sem tengdadóttur Íslands, þar sem hún er gift leikaranum og leikstjóranum Gunnari Eiríkssyni og eiga þau fjögurra ára son og búa í Osló.
Í viðtali við Deadline í fyrra sagðist Inga hafa komið beint frá Cannes og inn í rútínuna að sækja son sinn í leikskólann.
„Það er mjög fljótt að komast aftur til veruleikans frá þessum óraunverulegu aðstæðum yfir í eitthvað sem er nálægt venjulegu lífi. Það er lífið eins og lífið. Það er það sem skiptir mig máli. Og það er það sem hefur gildi. Og hitt er skemmtilegt og svolítið brjálað, en það er ekki raunveruleikinn,“ segir hún.
Gunnar (42) er fæddur 1984 í Tromsø í Noregi, móðir hans er íslensk og faðir hans norskur. Gunnar starfar í Noregi sem leikari, leikskáld, leikstjóri og tónlistarhöfundur. Hann var höfundur leikritsins Kafbátur sem Þjóðleikhúsið sýndi og sagði af því tilefni að þegar hann fæddist hefðu foreldrar hans talað íslensku á heimilinu og því hafi íslenskan orðið móðurmál hans.
Gunnar lék meðal annars aðalhlutverk í sjónvarpsþáttunum Pørni, sem komnar eru þrjár þáttaraðir af og finna má á Netflix.