
Málið hefur vakið óhug vestanhafs en pilturinn virðist hafa verið ósáttur við föður sinn þegar hann tók af honum Nintendo Switch-tölvu og sagði honum að fara að sofa.
Pilturinn, Clayton Dietz, er sagður hafa komist inn í byssuskáp á heimili sínu sem hann notaði gegn föður sínum. Hann hafði fagnað 11 ára afmæli sínu fyrr þennan sama dag að því er fram kemur í frétt People.
Lögregla kom á vettvang klukkan 03:20 aðfaranótt 13. janúar þar sem faðirinn, hinn 42 ára gamli Douglas Dietz, fannst látinn í blóði sínu.
Jillian Dietz, móðir Clayton, sagði við lögreglu að hún hafi vaknað við háværan hvell og talið að flugeldur hefði sprungið í herberginu þar sem hún fann sterka lykt af púðri. Þegar hún opnaði augun sá hún son sinn sem sagði að faðir hans væri látinn.
Pilturinn er í haldi yfirvalda og segir í frétt People að saksóknarar fari fram á að réttað verði yfir honum líkt og um fullorðinn einstakling sé að ræða.