fbpx
Miðvikudagur 24.desember 2025
EyjanFastir pennar

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Ljós í myrkri

Eyjan
Miðvikudaginn 24. desember 2025 06:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er eitthvað töfrandi við aðventuna. Þrátt fyrir eril, innkaupa- og gátlista, endalaus þrif og ákveðið stress, þá fylgir henni á einhvern undarlegan og þversagnarkenndan hátt líka ákveðin innri ró. Í sítengdri veröld sem krefst þess að við svörum skilaboðum samstundis og stöðugrar kröfu um afköst, er kærkomið að leyfa sér smá kæruleysi. Það má sleppa því að svara. Það má vera utan þjónustusvæðis. Því þannig eru jólin.

Þau færa okkur annan takt sem býður okkur að staldra aðeins við. Og bara vera. Hvernig sem við viljum.

Kolniðamyrkur og kertaljós

Ég brunaði heim á Flateyri á sunnudag, með bílinn fullan af spenntum börnum, jólagjöfum og kósífötum. Um kvöldið sat ég í stofunni og horfði út um gluggann sem vanalega býður upp á stórbrotið útsýni yfir Önundarfjörð. En það sást ekki út. Það var kolniðamyrkur. Ég gleymi því alltaf hvað það verður dimmt í desember heima.

En við fundum jólaljósin og kveiktum á þeim, ásamt nokkrum kertum og strax varð myrkrið fjarlægara.

Þetta er akkúrat tíminn þegar við kveikjum ljós í myrkrinu. Bæði bókstaflega, en líka í einhverjum æðri skilningi. Kannski er það ástæðan fyrir því að jólin snerta okkur svona djúpt. Skipta okkur svona miklu máli. Þau minna okkur á að þrátt fyrir áreitið og alla ringulreið heimsins þá þráum við kannski alltaf það sama. Öryggi, samkennd, frið og frelsi. Og auðvitað líka svolítil huggulegheit.

Hátíð ljóss og friðar

Jólin eru hátíð ljóss og friðar. Friður á jörð kann að hljóma sem fjarlæg hugmynd um þessar mundir. Því miður. En hér á landi búum við sem betur fer við frið og frelsi. Flest okkar fara tiltölulega óttalaus að sofa og vakna örugg.

Það eru þó ekki allir sem búa við þau forréttindi. Ekki einu sinni á Íslandi. Um jólin skerpist þessi vitund. Við sjáum hvar skórinn kreppir. Það eru því miður einstaklingar í okkar samfélagi sem standa fyrir utan ljósið, hvort sem er vegna veikinda, fátæktar, jaðarsetningar, einangrunar eða ofbeldis.

Þá reynir á samfélagsgerðina. Hvernig við vörpum ljósi á þau sem standa höllum fæti. Hvernig við tökum utan um hvert annað. Hvernig kerfin okkar eru hönnuð og hvort öryggisnetin okkar séu nógu þéttofin.

Jólasagan og samfélagsleg ábyrgð

Jólasagan sjálf byggir á þessari spurningu. Saga um brothætt líf,  lítið barn sem fæðist við ótryggar aðstæður. Um foreldra á flótta, í samfélagi sem átti ekki pláss. Um fólk á jaðrinum. Þetta er ekki saga um fullkomnar aðstæður, heldur um mannlega reisn við erfið skilyrði.

Kannski er það kjarni jólanna, að minna okkur á að friður og frelsi er ekki einstaklingsbundið, heldur samfélagslegt verkefni. Að enginn er raunverulega frjáls ef aðrir búa við ótta, skort eða útilokun. Að frelsi okkar allra stendur og fellur með frelsi annarra.

Í heimi þar sem ótti og myrkur eru notuð sem stjórntæki eru jólin kærkomið mótvægi. Þau minna okkur á að loka ekki augunum fyrir þeim sem standa utan ljóssins. Samkennd er ekki veikleiki, heldur styrkur. Fjölbreytileiki er ekki ógn heldur auður.  Það krefst hugrekkis að halda augunum opnum og halda áfram að kveikja ljós í hvert sinn sem myrkrið nær yfirhöndinni.

Leiðarljósið okkar allra

Ég vona að jólin færi ykkur þá gæfu að hægja aðeins á. Að hlusta betur, á hvert annað og á þau sem fá kannski ekki alltaf að láta rödd sína heyrast. Ég ætla hið minnsta að njóta þess að halda jól með fólkinu sem ég elska mest. Horfa sem minnst á klukkuna og leyfa tímanum að liða. Leika við börnin mín, spila, borða góðan mat og slaka á. Ég get leyft mér slíkan munað vegna þess að ég bý við frið og forréttindi.

Munum að friður er ekki sjálfgefinn. Frelsið ekki heldur. Látum það vera okkar leiðarljós.

Besta jólagjöfin sem við getum gefið hvert öðru er að axla þá sameiginlegu ábyrgð að kveikja ljós, aftur og aftur.

Því þar sem ljósið er, þar býr vonin.

Gleðileg jól!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina

Þorsteinn Pálsson skrifar: Litli hluthafinn rýfur málhvíldina
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Stjórnarandstaðan krossleggur lappir og þykist óspjölluð og hrein – talar gegn lýðræði

Svarthöfði skrifar: Stjórnarandstaðan krossleggur lappir og þykist óspjölluð og hrein – talar gegn lýðræði
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Biðskylda
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum
Reiði skólameistarinn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Nína Richter skrifar: Jólaljós fyrir femínista og Miðflokksfrændur

Nína Richter skrifar: Jólaljós fyrir femínista og Miðflokksfrændur
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Verðbólga fírast niður en vextir næst ákveðnir eftir rúma tvo mánuði

Verðbólga fírast niður en vextir næst ákveðnir eftir rúma tvo mánuði
EyjanFastir pennar
22.11.2025

Sigmundur Ernir skrifar: Mikilvægasti samningur Íslandssögunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Mikilvægasti samningur Íslandssögunnar
EyjanFastir pennar
22.11.2025

Óttar Guðmundsson skrifar: Ungmennafélagsandinn og Einar Kárason

Óttar Guðmundsson skrifar: Ungmennafélagsandinn og Einar Kárason