fbpx
Mánudagur 30.júní 2025
Fréttir

Bíllinn er fundinn og parið handtekið: Reyndu að stela öðrum bíl í gærkvöld með sömu aðferð

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 6. mars 2016 13:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bíll sem stolið var af Nicolai Þorsteinssyn í gær með þeirra aðferð að par kom að skoða bílinn eftir að hafa séð hann auglýstan til sölu en ók síðan burtu á bílnum er nú fundinn. Fannst hann upp í Heiðmörk í gærkvöld og hafði ökumaðurinn fest hann í skafli. Bíllinn virðist óskemmdur.

Við greindum frá því í frétt í gærkvöld að par (fólkið er líklega á fertugsaldri) kom að skoða bíl til sölu hjá Nicolai Þorsteinssyni í Seljahverfinu síðdegis í gær. Fólkið bað um að fá að skjótast á bílnum upp í Grafarholt en sást ekki eftir það og svaraði ekki í síma. Nicolai tilkynnti málið til lögreglu en hann hafði bæði góða lýsingu á fólkinu og hafði fengið að sjá persónuskilríki konunnar. Lögreglan kannaðist við fólkið en það er talið hafa stundað þessa iðju um nokkurt skeið í því skyni að finna sér svefnstað um nætur en þau eru húsnæðislaus.

Í samtali við dv.is í dag sagði Nicolai að maður hefði haft samband við sig í gærkvöld og tjáð sér að parið hafi reynt að leika sama leik við sig, vildi fá að skjótast á bílnum sem hann hafði til sölu, en sá maður vísaði þeim frá. Þykir líklegt að þetta hafi gerst eftir að parið festi bílinn í Heiðmörk í gær.
Fólkið var handtekið í gærkvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“

Sérfræðingur telur að höfundarréttarlög hafi verið brotin með múmínlundinum – „Mér finnst það mjög líklegt já“
Fréttir
Í gær

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“

Kona sem frelsissvipti dreng eftir bjölluat einnig sökuð um ofbeldi á leikskóla – „Þá slær hún hann af krafti í andlitið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio

Áhugamenn um tölvuleiki og knattspyrnu eflaust kátir – Mannanafnanefnd samþykkir eiginnöfnin Link og Baggio
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“

Kristján: Íslendingar þurfa að taka sér tak – „Þetta fólk hverfur inn í myrkur og þögn“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“

Eiginkonan í áfalli: „Þetta eru svik“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“

Vegagerðin vill hjartalaga umferðarljósin hennar Margrétar burt – „Ég eiginlega veit ekki hvað ég á að segja“