

Liverpool náði stigi gegn Sunderland á heimavelli í kvöld en sjálfsmark Sunderland varð til þess að liðið náði stigi.
Eftir að hafa lent undir í leiknum tókst Liverpool að bjarga stigi en skot Florian Wirtz skaut í varnarmann og boltinn fór inn. Þýski miðjumaðurinn sem kostaði 116 milljónir punda hélt að hann væri mættur á blað en markið var að lokum dæmt sem sjálfsmark.
Liverpool reyndi að sækja sigurinn undir lok leiks en liðið náði ekki að finna sigurmarkið. 1-1 niðurstaðan.
Á sama tíma vann Leeds mjög góðan 3-1 sigur á Chelsea, heimamenn komust í 2-0 í fyrri hálfleik og var sigurinn aldrei í hættu.
Liverpool er í áttunda sæti deildarinnar með 22 stig, ellefu stigum á eftir toppliði Arsenal.
Chelsea fer niður í fjórða sæti deildarinnar og er nú níu stigum frá toppliðinu.
Leeds 3 – 1 Chelsea:
1-0 Jaka Bijol
2-0 Ao Tanaka
2-1 Pedro Neto
3-1 Dominic Calvert-Lewin
Liverpool 1 – 1 Sunderland:
0-1 Chemdsdine Talbi
1-1 Florian Wirtz