fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Sagður vera að gefast upp eftir baulið um helgina

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 3. desember 2025 19:30

Guglielmo Vicario Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guglielmo Vicario er sagður íhuga framtíð sína hjá Tottenham Hotspur eftir að hafa misst stuðning hluta stuðningsmanna liðsins.

Markvörðurinn 29 ára hefur átt erfitt uppdráttar á tímabilinu með liði sem hefur verið í basli, og náði vandræðagangurinn nýju lágpunkti um helgina þegar Spurs töpuðu 2–1 á heimavelli gegn Fulham.

Atvikið sem kveikti reiði stuðningsmanna átti sér stað þegar Vicario fór út úr teignum til að hreinsa bolta, en á endanum sendi hann hann beint á Joshua King sem lagði upp sigurmarkið fyrir Harry Wilson.

Tottenham tapaði leiknum og var Vicario baulað af eigin áhorfendum.

Samkvæmt ítalska miðlinum La Gazzetta dello Sport er Vicario nú farinn að efast alvarlega um stöðu sína hjá félaginu og íhugar að snúa aftur til Ítalíu.

Inter Milan og fleiri félög í Serie A eru sögð fylgjast grannt með stöðunni og gætu gert tilboð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Enn versnar ástandið hjá Tottenham

Enn versnar ástandið hjá Tottenham
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum

Dóttir hins umdeilda sérfræðings vekur athygli með mjög djörfum myndum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fundarhöld á Old Trafford í vikunni – Búist við að þessir séu allir til sölu í sumar

Fundarhöld á Old Trafford í vikunni – Búist við að þessir séu allir til sölu í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta

Samfélagið í áfalli eftir skyndilegt fráfall fjölskylduföður – Vinsæll lögmaður og fyrrum vonarstjarna í fótbolta
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“

Valtýr og Kristinn hneykslaðir og láta í sér heyra – „Gjörsamlega fyrir neðan allar hellur“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur

Samþykkir nýjan samning og Bruno Fernandes er næstur
433Sport
Í gær

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar

Trump og hans fólk segja að HM verði öruggasti viðburður sögunnar
433Sport
Í gær

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi

Fundarhöld á næstunni og Gerrard gæti verið á leið í þjálfun á Englandi