fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fókus

Mælir ekki með því að missa meira en kíló á viku – Þetta er ástæðan

Fókus
Laugardaginn 29. nóvember 2025 13:30

Ragga Nagli. Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, mælir ekki með því að missa meira en kíló á viku. Hún útskýrir málið í nýjum pistli á Facebook, en pistlar hennar um heilsu á mannamáli hafa notið mikilla vinsælda um árabil.

Ragnhildur er sálfræðingur með áherslu á heilsusálfræði og lærður einkaþjálfari.

Sjá einnig: Ragnhildur segir að þetta sé ekki eina leiðin til að borða hollt – Prófaðu þessa nýju nálgun í staðinn

„Það hljómar rosa vel á blaði að missa meira en kíló á viku. En það er ansi dýru verði keypt fyrir líkamann,“ segir Ragnhildur og bætir við að langflestir bæta á sig öllum þessum kílóum aftur. „Og yfirleitt gott betur og kenningar eru uppi að það megi skrifa á lækkaða grunnbrennslu vegna taps á vöðvamassa.“

Ragnhildur segir að það sé svo sannarlega ekki skortur á „sveltikúrum sem sýna fram á stjarnfræðilegan skammtímaárangur með fyrir og eftir myndum.“

„Það er jú allra söluvænlegsta auglýsingatrikkið […] En rannsóknir sýna að slík öfgakend nálgun að skera hitaeiningar við nögl hefur víðtæk neikvæð áhrif á líkamann,“ segir hún og tekur dæmi:

  • „Missir á vöðvamassa vegna skorts á amínósýrum
  • Minni orka til að taka á því í ræktinni
  • Minni dagleg hreyfing/fjörbrennsla (NEAT)
  • Lækkaður efnaskiptahraði
  • Lækkun í kynhormónum
  • Hátt kortisól
  • Hátt streitustig vegna hungurs og næringarskorts
  • Hárlos, brotnar neglur, húðvandamál
  • Veikara ónæmiskerfi
  • Næringarskortur

Svo ekki sé minnst á óheilbrigt samband við mat með reglulegum ofátsköstum sem hafa í för með sér skömm, samviskubit, sektarkennd og mjög neikvæða sjálfsmynd.“

Ragnhildur ræðir þetta nánar í pistlinum sem má lesa hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða

Þekktur leikari látinn eftir eldsvoða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“

Varð gulur eins og Simpsons fígúra vegna ofdrykkju – „Ég veit ekki af hverju ég er enn þá á lífi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka

Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fékk krefjandi spurningu á leik FH og Hauka
Fókus
Fyrir 3 dögum

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka

OnlyFans-stjarna með sjaldgæfan sjúkdóm – Brjóstin stækka og stækka
Fókus
Fyrir 4 dögum

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn

Leikkonan opnar sig um sorglegar vendingar í baráttu hennar við MS-sjúkdóminn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short

Enn einn harmurinn í lífi Martin Short
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli

Hélt fram hjá kærastanum og stendur nú frammi fyrir stóru vandamáli
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“

Sökuð um að auka vinsældir sínar og áhrif innan MAGA-hreyfingarinnar með her af gervimennum – „Þetta er ein sturlaðasta samsæriskenning sem ég hef heyrt“