fbpx
Föstudagur 26.desember 2025
Pressan

Óvæntar vendingar í sænsku kynferðisbrotamáli – Grunur beinist að meintum þolanda

Pressan
Fimmtudaginn 6. nóvember 2025 08:00

Frá Pildammsparken í Malmö. Mynd: Jorchr - Wikimedia Commons, CC BY-SA 3.0

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um klukkan 19 að kvöldi föstudagsins 24. október síðastliðins var ung kona á gangi í almenningsgarðinum Pildammsparken í miðborg Malmö í Svíþjóð. Unga konan hringdi í neyðarlínuna og sagðist telja að einhver væri að elta hana. Sambandið slitnaði en síðan þá hefur lögreglan rannsakað mál konunnar vegna gruns um að hún hafi orðið fyrir nauðgun þetta kvöld. Nú segir embætti ríkissaksóknara þar í landi hins vegar að grunur leiki á að konan hafi í tilkynningu sinni veitt falskar upplýsingar með fullyrðingum um að einhver virtist vera að elta hana.

Samvæmt fyrri fréttum Aftonbladet af málinu lék grunur á að unga konan hafi verið elt í 20 mínútur áður en loks var ráðist á hana. Lögreglan í Malmö óskaði opinberlega eftir upplýsingum frá fólki sem kynni að hafa verið statt eða á ferð í nágrenninu um þetta leyti umrætt kvöld og kynni að hafa séð eitthvað og einnig var óskað eftir myndefni, til að mynda úr myndavélum bifreiða.

Eftir að símtalið við konuna slitnaði voru lögreglubílar sendir á vettvang en lögreglan vissi ekki nákvæmlega hvar konan var stödd og þegar lögreglumenn fundu hana var árásin að sögn yfirstaðin og enginn maður sjáanlegur nálægt henni en konan var flutt á sjúkrahús. Talið var að auk kynferðisofbeldis hefði konan verið lamin. Blóð fannst á staðnum en samkvæmt heimildum Aftonbladet var það ekki úr ungu konunni.

Ótti

Það þótti vekja sérstakan óhug að svona árás væri framin svo snemma kvölds og fullvissaði lögreglan íbúa Malmö um að engin ástæða væri til að óttast en mælt var þó með því að fólk væri vart um sig í almenningsgörðum borgarinnar eftir að skyggja tæki

Rannsókn lögreglu hefur staðið yfir síðan þá en ekki hefur tekist að beina sjónum að ákveðnum einstaklingi, sem mögulegum geranda, og beiðnir um upplýsingar frá almenningi hafa verið ítrekaðar. Nú hefur hins vegar embætti ríkissaksóknara (s. Åklagarmyndigheten) sem hefur meiri aðkomu að lögreglurannsóknum en sambærilegt embætti á Íslandi, greint frá því að nýjar upplýsingar bendi til að í símtalinu til neyðarlínunnar þetta kvöld hafi konan, sem eins og áður segir greindi þá frá því að einhver væri að elta hana, ekki sagt satt og rétt frá. Hún sé til rannsóknar vegna gruns um falska tilkynningu.

Frekari upplýsingar eru ekki gefnar í tilkynningu embættisins og því liggur ekki fyrir hvort þetta þýði einnig að grunur leiki á að konan hafi alls ekki orðið fyrir neinu ofbeldi eða að grunur leiki á að hún hafi orðið fyrir ofbeldi en af einhverjum ástæðum veitt falskar upplýsingar um að einhver væri að elta hana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Kraftaverk á jólum: Lögreglumaður sem var skotinn í höfuðið útskrifaður af sjúkrahúsi

Kraftaverk á jólum: Lögreglumaður sem var skotinn í höfuðið útskrifaður af sjúkrahúsi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nú verður brátt hægt að fá vinsælt offitulyf í töfluformi

Nú verður brátt hægt að fá vinsælt offitulyf í töfluformi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fyrrverandi barnastjarnan óþekkjanleg – Heimilislaus í hjartnæmu myndbandi

Fyrrverandi barnastjarnan óþekkjanleg – Heimilislaus í hjartnæmu myndbandi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Rússneskur herforingi sprengdur í loft upp

Rússneskur herforingi sprengdur í loft upp
Pressan
Fyrir 4 dögum

Meintur búðarþjófur reynir að skjóta lögreglumann – Sjáðu myndbandið

Meintur búðarþjófur reynir að skjóta lögreglumann – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 4 dögum

29 börn hurfu af götum Atlanta – Einn maður var ákærður en fjölskyldurnar segja réttlætinu ekki fullnægt

29 börn hurfu af götum Atlanta – Einn maður var ákærður en fjölskyldurnar segja réttlætinu ekki fullnægt
Pressan
Fyrir 5 dögum

Beinagrind horfins manns fannst í bílskúr

Beinagrind horfins manns fannst í bílskúr
Pressan
Fyrir 6 dögum

Vonast til að leysa loksins ráðgátuna um morðið á litlu fegurðardrottningunni eftir að ný sönnunargögn komu fram

Vonast til að leysa loksins ráðgátuna um morðið á litlu fegurðardrottningunni eftir að ný sönnunargögn komu fram