Fimmtudagskvöldið 30. október verða Íslensku sjónvarpsverðlaunin afhent í fyrsta sinn. Hátíðin, sem er uppskeruhátíð sjónvarpsgeirans, fer fram í Gamla bíói og verða þau verðlaunuð sem þóttu standa fram úr í sjónvarpi á árunum 2023 og 2024. Veitt verða verðlaun fyrir sjónvarpsefni sem frumsýnt var á sjónvarpsstöðvum á þessu tímabili. Heiðursverðlaun Íslensku sjónvarpsverðlaunanna verða einnig afhent. Það eru Sjónvarp Símans, Sýn og RÚV sem standa að verðlaununum.
Veislustjórar kvöldsins verða Björg Magnúsdóttir og Logi Bergmann Eiðsson. Verðlaunagripurinn er hannaður af Stefáni Finnbogasyni, gripurinn sækir innblástur í gömlu stillimyndina og textavarpið en ásýnd verðlaunanna er í sama dúr.
Ekki hefur verið verðlaunað fyrir sjónvarpsefni frá því árið 2023 þegar Edduverðlaununum var skipt niður í kvikmyndaverðlaun og sjónvarpsverðlaun. Verðlaunahátíðin verður ekki sýnd í sjónvarpi.
Netkosning mun fara fram á Vísi þar sem almenningi er gefinn kostur á að kjósa um besta sjónvarpsefnið á árunum tveimur.
Tilnefningar til Íslensku sjónvarpsverðlaunanna voru tilkynntar í dag og dreift yfir daginn. Fyrst er greint frá tilnefningum fyrir árið 2023 og svo fyrir árið 2024.
Fyrir árið 2023 eru þættirnir Afturelding með flestar tilnefningar eða fjórtán, með næst flestar er Svo lengi sem við lifum með tíu tilnefningar. Þættirnir Húsó eru með flestar tilnefningar árið 2024 eða þrettán, þar á eftir eru Svörtu Sandar 2 og DIMMA með ellefu hvor.
Á annað hundrað verkefna barst frá sjónvarpsstöðvunum og framleiðslufyrirtækjum í haust þegar auglýst var til innsendinga og voru innsendingar nærri 600 talsins. Þrjár dómnefndir voru skipaðar til þess að fara yfir efnið en þær skipa fólk sem hefur góða innsýn í geirann, haft ýmsan snertiflöt á sjónvarpi, sjónvarpsframleiðslu eða fjallað um í fjölmiðlum.
Hér eru allar tilnefningar fyrir árið 2024:
Sjónvarpsefni ársins 2024
- Áramótaskaupið 2024
- Bannað að hlæja
- Húsó
- IceGuys 2
- Idol
- Íslensk sakamál
- Kennarastofan
- Kviss ársins
- Söngvakeppnin
Skemmtiefni ársins 2024
- Vikan með Gísla Marteini
- Kappsmál
- Bannað að hlæja
- Draumahöllin
- IceGuys 2
Sjónvarpsviðburður ársins 2023
- X24 Kosningavaka
- Besta deildin 2024
- Úrslitakeppnin í körfubolta 2024
- Tónaflóð á Menningarnótt 2024
- Bakgarðshlaupið – maí 2024
Sjónvarpsmanneskja ársins 2024
- Bragi Valdimar Skúlason – Kappsmál
- Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir – Þríburar
- Viktoría Hermannsdóttir – Æskuslóðir
- Halla Ólafsdóttir – Vegur að heiman
- Ása Ninna Pétursdóttir – Sveitarómantík
Heimildaefni ársins 2024
- Þríburar
- Perlur Kvikmyndasafnsins
- Kaninn
- Grindavík
- Mari
Búningar ársins 2024
- Húsó – Brynja Skjaldardóttir
- Svörtu sandar II – Eva Vala Guðjónsdóttir
- DIMMA (The Darkness) – Helga Stefánsdóttir
- Ráðherrann 2 – Eva Lind Rútsdóttir
- Stundin okkar: Tökum á loft – Helga Rún Pálsdóttir
Gervi ársins 2024
- Húsó – Salóme Ósk Jónsdóttir
- Skvíz – Ragna Fossberg
- Ráðherrann 2 – Hafdís Pálsdóttir
- Dimma (The Darkness) – Guðbjörg Huldís
- Draumahöllin – Ragna Fossberg
Leikið sjónvarpsefni ársins 2024
- Húsó
- Ráðherrann 2
- DIMMA (The Darkness)
- Svörtu sandar II
- Útilega
Íþróttaefni ársins 2024
- Stofan – EM karla í fótbolta
Ólympíukvöld
Grindavík
Íslandsmeistarar 2024
Stúkan 2024

Menningar- og mannlífsefni ársins 2024
- Æskuslóðir
- Endurtekið
- RAX augnablik 2024
- Sveitarómantík
- Klassíkin okkar: Á valdi tilfinninganna

Frétta- eða viðtalssefni ársins 2024
- Kveikur
- Vistheimilin
- RAX augnablik 2024
- Eftirmál
- Vegur að heiman
Barna- og unglingaefni ársins 2024
- Lubbi finnur málbein
- Stundin okkar: Tökum á loft
- Krakkaskaupið 2024
- Sögur: verðlaunahátíð barnanna 2024
Tónlist ársins 2024
- Húsó – Salka Valsdóttir
- Ráðherrann 2 – Kjartan Holm
- Skvíz – Halldór Eldjárn
- DIMMA (The Darkness) – Atli Örvarsson, Kjartan Holm, Sindri Már Sigfússon
- IceGuys 2 – Kristján Sturla Bjarnason, Ásgeir Orri Ásgeirsson, Þormóður Eiríksson
Handrit ársins 2024
- Húsó – Arnór Pálmi Arnarson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir
- Ráðherrann 2 – Birkir Blær Ingólfsson, Jónas Margeir Ingólfsson
- Svörtu sandar II – Aldís Amah Hamilton, Baldvin Z, Ragnar Jónsson, Elías Helgi Kofoed Hansen
- DIMMA (The Darkness) – Óttar Norðfjörð, Sam Shore, Kacie Stetson, Hannah Marshall
- Draumahöllin – Magnús Leifsson, Saga Garðarsdóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson
Kvikmyndataka ársins 2024
- Húsó – Magga Vala
- DIMMA (The Darkness) – Árni Filippusson
- Svörtu sandar II – Jóhann Máni Jóhannsson
- IceGuys 2 – Baltasar Breki Samper
- Ráðherrann 2 – Gunnar Auðunn Jóhannsson
Brellur ársins 2024
- Svörtu sandar II – Sigurgeir Arinbjarnarson
- DIMMA (The Darkness) – Pétur Karlsson
- Stofan – EM karla í fótbolta – Tómas Ólason
- Stundin okkar – Tómas Ólason, Arna Rún B. Gústafsdóttir, Jónmundur Gíslason
- IceGuys 2 – Úlfur E. Arnalds
Klipping ársins 2024
- Húsó – Úlfur Teitur Traustason
- Perlur Kvikmyndasafnsins – Ragnheiður Thorsteinsson
- DIMMA (The Darkness) – Guðni Halldórsson, Guðlaugur Andri Eyþórsson, Andri Steinn Guðjónsson
- Svörtu sandar II – Úlfur Teitur Traustason
- IceGuys 2 – Guðni Hilmar Halldórsson, Allan Sigurðsson, Hannes Þór Halldórsson
Hljóð ársins 2024
- Húsó – Gunnar Árnason
- Kvöldstund með Eyþóri Inga 2024 – Sigurður Ingvar Þorvaldsson
- DIMMA (The Darkness) – Gunnar Árnason
- Ráðherrann 2 – Gunnar Árnason
- IceGuys 2 – Birgir Tryggvason
Leikmynd ársins 2024
- Svörtu sandar II – Gunnar Pálsson
- Húsó – Sólrún Ósk Jónsdóttir
- IceGuys 2 – Anika Laufey Baldursdóttir
- DIMMA (The Darkness) – Guðni Rúnar Gunnarsson
- Draumahöllin – Aron Martin Ásgerðarson

Sjónvarpsefni ársins (val fólksins) árið 2024
- Áramótaskaupið 2024
- Bannað að hlæja
- Húsó
- IceGuys 2
- Idol
- Íslensk sakamál
- Kennarastofan
- Kviss ársins
- Söngvakeppnin
Hér eru allar tilnefningar fyrir árið 2023:
Leikmynd ársins 2023
- Svo lengi sem við lifum – Heimir Sverrisson (Irma studio)
- Heima er best – Tonie Zetterström
- Afturelding – Sólrún Ósk Jónsdóttir
- Arfurinn minn – Sveinn Viðar Hjartarson
- Áramótaskaupið 2023 – Úlfur Grönvold

Hljóð ársins 2023
- Stormur – Gunnar Árnason
- Afturelding – Rune Klausen, Sebastian Vaskio
- Framkoma: 4. sería – Brynjar Unnsteinsson
- Idol 2023 – Sigurður Ingvar Þorvaldsson
- Venjulegt fólk: 6. sería – Birgir Örn Tryggvason
Klipping ársins 2023
- Stormur – Heimir Bjarnason og Sævar Guðmundsson
- Afturelding – Kristján Loðmfjörð
- Svo lengi sem við lifum – Valdís Óskarsdóttir, Guðlaugur Andri Eyþórsson, Sigurður Eyþórsson
- Skaginn – Logi Ingimarsson
- Idol 2023 – Fannar Scheving Edvardsson
Brellur ársins 2023
- Heima er best – Jan Daghelinckx
- IceGuys – Úlfur E. Arnalds
Kvikmyndataka ársins 2023
- Baklandið 2 – Anton Smári Gunnarsson
- Kanarí 2 – Hrafn Garðarsson, Margrét Vala Guðmundsdóttir
- Afturelding – Jakob Ingimundarson, Ásgrímur Guðbjartsson
- Svo lengi sem við lifum – Árni Filippusson
- Venjulegt fólk: 6. sería – Jóhann Máni Jóhannsson
Handrit ársins 2023
- Svo lengi sem við lifum – Aníta Briem
- Afturelding – Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, Halldór Laxness Halldórsson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Katrín Björgvinsdóttir
- IceGuys – Sólmundur Hólm Sólmundarson
- Krakkaskaupið 2023 – Árni Beinteinn Árnason
- Stormur – Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sævar Guðmundsson, Heimir Bjarnason
Tónlist ársins 2023
- Ævintýri Tulipop – Gísli Galdur Þorgeirsson, Máni Svavarsson
- Kanarí 2 – Salka Valsdóttir, Magnús Jóhann Ragnarsson, Hildur Kristín Stefánsdóttir, Jóhannes Ágúst Sigurjónsson
- Stormur – Jófríður Ákadóttir
- Afturelding – Davíð Berndsen
- Svo lengi sem við lifum – Kjartan Holm

Barna- og unglingaefni ársins 2023
- Akademíurnar
- Hvítar lygar
- Krakkaskaupið 2023
- Sögur – verðlaunahátíð barnanna 2023
- Stundin okkar – Bolli og Bjalla
Frétta- eða viðtalssefni ársins 2023
- Okkar á milli
- Landinn
- Kompás 2023
- Kveikur
- Kastljós

Menningar- og mannlífsefni ársins 2023
- Hvunndagshetjur II
- Fílalag
- Hvar er best að búa?: 4. sería
- Að heiman
- Sambúðin
Leikið sjónvarpsefni ársins 2023
- Arfurinn minn
- Afturelding
- Svo lengi sem við lifum
- Heima er best
- Venjulegt fólk: 6. sería
Íþróttaefni ársins 2023
- Skaginn
- HM Stofan – HM karla í handbolta
- HM Stofan – HM kvenna í fótbolta
- Körfuboltakvöld 2023
- Lengsta undirbúningstímabil í heimi 2023
Búningar ársins 2023
- Kanarí 2 – Karen Sonja Briem
- Afturelding – Margrét Einarsdóttir
- Venjulegt fólk: 6. sería – Rannveig Gísladóttir
- Svo lengi sem við lifum – Júlíana Lára Steingrímsdóttir
- IceGuys – Sigrún Ásta Jörgensen
Heimildaefni ársins 2023
- Baklandið 2
- Stórmeistarinn
- Stormur
- Tvíburar
- Surtsey: Land verður til
Gervi ársins 2023
- Afturelding – Josephine Hoy
- Venjulegt fólk: 6. sería – Kristín Júlla Kristjánsdóttir
- Heima er best – Ásta Hafþórsdóttir
- Svo lengi sem við lifum – Kristín Júlla Kristjánsdóttir
- Arfurinn minn – Hafdís Kristín Lárusdóttir
Leikari ársins 2023
- Ingvar E. Sigurðsson / Afturelding
- Þorsteinn Bachmann / Afturelding
- Þórhallur Sigurðsson / Arfurinn minn
- Hilmar Guðjónsson / Venjulegt fólk
- Vignir Rafn Valþórsson / Heima er best

Leikkona ársins 2023
- Svandís Dóra Einarsdóttir – Afturelding
- Katla Margrét Þorgeirsdóttir – Svo lengi sem við lifum
- Hanna María Karlsdóttir – Heima er best
- Halldóra Geirharðsdóttir – Venjulegt fólk: 6. sería
- Sandra Barilli – IceGuys

Útsendingarstjóri ársins 2023
- Ragnar Eyþórsson – Vikan með Gísla Marteini
- Ragnar Eyþórsson – Sögur – verðlaunahátíð barnanna 2023
- Salóme Þorkelsdóttir, Þór Freysson – Söngvakeppnin 2023
- Björgvin Harðarson – Idol 2023
- Stefán Snær Geirmundsson – Úrslitakeppnin í körfubolta 2023
Leikstjóri ársins 2023
- Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, Gagga Jónsdóttir, Elsa María Jakobsdóttir – Afturelding
- Katrín Björgvinsdóttir – Svo lengi sem við lifum
- Sævar Guðmundsson – Stormur
- Þór Freysson – Góður strákur og vel upp alinn
- Álfheiður Marta Kjartansdóttir – Mannflóran
Sjónvarpsviðburður ársins 2023
- Söngvakeppnin 2023
- Góður strákur og vel upp alinn
- Úrslitakeppnin í körfubolta 2023
- Klassíkin okkar – Kvikmyndatónlistarveisla
- Íslandsmótið í golfi
Sjónvarpsmanneskja ársins 2023
- Viktoría Hermannsdóttir – Hvunndagshetjur II
- Sigurlaug Margrét Jónasdóttir – Okkar á milli
- Berglind Pétursdóttir – Vikan með Gísla Marteini 2023
- Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir – Tvíburar
- Chanel Björk Sturludóttir – Mannflóran
Skemmtiefni ársins 2023
- IceGuys
- Vikan með Gísla Marteini 2023
- Kanarí 2
- Með á nótunum
- Áramótaskaupið 2023
