fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Leiklistarhjón selja á Laugarásvegi

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. febrúar 2026 10:32

Tinna og Sveinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiklistarhjónin Tinna Hrafnsdóttir og Sveinn Geirsson hafa sett íbúð sína á Laugarásvegi 47 á sölu. 

Sjónvarpsþættirnir Hildur sem Tinna leikstýrir gerðir eftir fyrstu bók Satu Rämö eru nú sýndir á Sjónvarpi Símans, en þættirnir hafa slegið í gegn hérlendis og enn frekar í Finnlandi.

Íbúðin er á 2. hæð í þriggja íbúða húsi sem byggt var árið 1959.

Sérinngangur er í íbúðina í gegnum garð sem henni fylgir. Íbúðin skiptist í anddyri með stiga upp í íbúðina, hol, eldhús og stofu í einu rými, baðherbergi og þvottahús.

Gengið er upp stiga í herbergjaálmu þar sem eru þrjú svefnherbergi.

Svalir ná endilangt yfir stofuna og geymsluskúr er í garðinum.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin