fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Mágkona Justin Bieber ákærð – Henti túrtappa í barþjón og sparkaði í punginn á öryggisverði

Fókus
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 21:30

Alaia Baldwin Aronow

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alaia Baldwin Aronow, systir Hailey Bieber og þar með mágkona Justin Bierber, á yfir höfði sér  fangelsisdóm fyrir meint aðild sína að slagsmálum á bar. Alaia hefur verið ákærð í fjórum liðum fyrir að slást af offorsi við þrjá starfsmenn inni á salerni staðarins.

Atvikið átti sér stað fyrir tæpum tveimur árum síðan á bar í Georgíu-fylki. Í ákærunni er Alaia sökuð um líkamsárás, tilraun til líkamsárásar, líkamsmeiðingu sem og skemmdarverk á eignum. Verði Alaia, sem er 33 ára gömul, sakfelld gæti hún átt yfir höfði sér 12 mánaða fangelsisdóm, sekt og einhverskonar samfélagsþjónustu.

Slagsmálunum var lýst þannig að Alaia á að hafa ráðist á þrjá starfsmenn á Club Elan í Savannah í brjálaðiskasti og kastað notuðum túrtappa í barþjón staðarins, rifið hár úr höfði annars starfsmanns og síðar sparkað í klof öryggisvarðar sem ætlaði að stilla til friðar.

Myndbandsupptökur eru til af atburðarásinni og því þykir líklegt að mágkonan þurfi fljótlega að gera sér það að góðu að dúsa í steininum um hríð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin