fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Daníel segir andrúmsloftið hafa verið eins og í jarðarför – „Þetta var bara ömurleg tilfinning, það var ekki reiði heldur bara þögn“

433
Laugardaginn 14. febrúar 2026 07:30

Víkingur fékk skell í Kaupmannahöfn en það kveikti á liðinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, var Gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.

Daníel var á sínu fyrsta tímabili með Víkingi í fyrra. Liðið var í smá brasi framan af móti en tók svo við sér og rústaði deildinni í raun að lokum.

Það varð vendipunktur þegar liðið tapaði Evrópueinvígi við Bröndby úti í Kaupmannahöfn, eftir að hafa leitt 3-0 eftir fyrri leikinn í Reykjavík.

„Við hefðum getað farið skrefi lengra í Evrópu en það var samt ákveðin sprengja í að ná þessum titli, að detta út þarna. Við komum gíraðir eftir það. Deildin var það eina sem var eftir,“ sagði Daníel.

Menn voru þó eðlilega afar langt niðri eftir leikinn við Bröndby.

„Ég hef eiginlega aldrei geta lýst því nákvæmlega hvað gerðist. Ég er alveg sjálfsgagnrýnin og átti klárlega að gera betur í einu markinu allavega. Maður tekur þetta aðeins inn á sig, þegar maður á eitthvað í mörkunum.

Þetta var bara ömurleg tilfinning, það var ekki reiði heldur bara þögn. Þetta var eins og jarðarför,“ sagði Daníel.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum
Walker kallar þetta gott
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Real Madrid setur óvænt nafn á blað sitt

Real Madrid setur óvænt nafn á blað sitt
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Stjórn United ætlar að gefa sér góðan tíma

Stjórn United ætlar að gefa sér góðan tíma
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi

Ólátabelgurinn Barton í haldi lögreglu – Handtekinn eftir slagsmál í golfklúbbi
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“

Jökull kallar eftir breytingum fyrir sumarið – „Er einfaldlega of stór til að næg stemning myndist þar“