fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Spennandi teiknismiðjur með Cartoon Dave

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 09:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralski skopmyndateiknarinn Dave „Cartoon Dave“ Hackett er á leið til landsins og ætlar að vera með ekki eina, heldur tvær teiknismiðjur á Borgarbókasafninu laugardaginn 14. febrúar.
Dave er afar vinsæll sjónvarpsmaður í Ástralíu en auk þess að leika og talsetja hefur hann kennt námskeið í gerð Disney-teiknimynda og stýrt eigin þætti á Disney-stöðinni.
Teiknimyndasíður og myndasögur hans hafa reglulega birst í dagblöðum og tímaritum um alla Ástralíu og hefur Dave skrifað og myndskreytt tuttugu og þrjár myndabækur, teiknibækur og skáldsögur fyrir börn og ungmenni. Þá hefur hann kennt yfir 250.000 börnum teiknistíl sem kallast „No-rules“ og hefur átt vinsældum að fagna.
Á teiknismiðjunum á Borgarbókasafninu, sem ætlaðar eru börnum 6 – 12 ára, ætlar Dave að kenna þátttakendum að teikna hvað sem er, allt frá köttum og leðurblökum upp í yndislegar, skrítnar gamlar konur, með 5 einföldum aðferðum.
Fyrri teiknismiðjan með Dave verður á Borgarbókasafninu Spönginni laugardaginn 14. febrúar milli kl. 13:00 – 14:00.
Sú seinni fer fram á Borgarbókasafninu Gerðubergi laugardaginn 14. febrúar kl. 15:00 – 16:00.
Aðgangur er ókeypis á smiðjurnar og eru öll velkomin.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin