fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Fókus

Vala Matt færir sig um set

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 13:40

Vala Matt

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlakonan Valgerður Matthíasdóttir, best þekkt sem Vala Matt, hefur sett íbúð sína á Ásvallagötu 69 á sölu. 

Íbúðin er 62,5 fermetrar á fyrstu hæð í fjórbýlishúsi sem byggt var árið 1938.

Íbúðin er tekin í gegn og sérstaklega teiknuð og hönnuð af Völu sjálfri.

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi.

Eldhúsinnréttingin er ný og sérhönnuð, teiknuð og smíðuð hjá fyrirtækinu Axis.Skápaplássið í eldhúsinu er alveg tvöfalt því allt er sérhannað og sérsmíðað þannig að hver sentimetri er nýttur og því er eins og um helmingi stærra eldhús sé að ræða. Blöndunartæki með rennandi vatni er beint fyrir ofan spanplöturnar frá Innréttingar og tæki. Í öðru blöndunartækinu er innbyggt sódavatnsstreymi þar sem hægt er að stilla á einfaldan hátt og fá sódavatn ískalt beint úr krananum. Í stærri krananum er hægt að stilla sjóðandi vatn beint úr krananum og bullsjóðandi beint í bollann. Sérstakar græjur og tæki fylgja með þessum einstöku krönum og eru þau í innréttingunni. Einnig er nýjung yfir spanhellunum þar sem er krani með rennandi vatni sem fer beint í pottinn eða ketilinn á suðuplötunni.

Stofan er björt með stórum gluggum, einn veggurinn er alveg þakinn speglum þannig að upplifunin í stofunni er eins og stofan sé helmingi stærri. Vala notar einnig spegla í eldhúsinnréttingunni sem tvöfalda upplifunina í borðstofunni.

Í svefnherberginu eru speglar sem tvöfalda upplifunina í herberginu.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Fókus
Fyrir 2 dögum

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi

Nær helmingur fólks hefur hugsað um einhvern annan í kynlífi
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“

8 skotheld ráð Ragnhildar til að bæta svefninn – „Því minna sem þú sefur, því fyrr deyrðu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“

„Á myrkustu stundunum náði sú hugsun í gegn að ég á þrjú börn og ég veit að þau elska mig“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þriðja dóttirin fædd

Þriðja dóttirin fædd
Fókus
Fyrir 1 viku

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist

Yfirgaf eiginmanninn fyrir „draumaprinsinn“ en ekki var allt sem sýndist
Fókus
Fyrir 1 viku

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu

Mátaði bikiní og fagnaði 61 árs afmælinu sínu