fbpx
Mánudagur 09.mars 2026
433Sport

Myndir af syni Beckham vekja mikla athygli – Á snekkju þar sem kærastan nartaði í hans allra heilagasta

433
Mánudaginn 16. febrúar 2026 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cruz Beckham og brasilíska kærasta hans, Jackie Apostel, hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum undanfarið þar sem þau láta oftar sjá sig saman opinberlega. Cruz, sem er sonur fyrrum knattspyrnustjörnunnar David Beckham og hönnuðarins Victoriu Beckham, er smám saman að skapa sér eigið nafn í tónlistarheiminum.

Myndir af þeim í fríi frá síðasta ári hafa farið á mikið flug á veraldarvefnum þar sem þau virðast ansi náinn á snekkju.

Jackie Apostel er brasilísk söngkona og lagahöfundur sem hefur starfað í tónlist um nokkurt skeið. Parið hefur deilt myndum saman frá ferðalögum og viðburðum, sem hefur kveikt áhuga aðdáenda Beckham-fjölskyldunnar. Þau sáust nýverið saman á tískusýningum og viðburðum í Evrópu, þar sem þau virtust afar samrýnd.

Cruz hefur áður gefið út tónlist og sagst stefna á feril í bransanum, líkt og móðir hans gerði á sínum tíma með Spice Girls. Samband þeirra Jackie virðist styðja við þann draum, enda er hún sjálf starfandi tónlistarkona.

Fjölmiðlar í Bretlandi hafa fylgst grannt með sambandinu, en fjölskyldan sjálf hefur haldið sig tiltölulega hlédræga um einkalífið. Ljóst er þó að unga parið nýtur þess að verja tíma saman og styðja hvort annað í sínum verkefnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum

Tottenham leitar til manns sem hefur gert vel á markaðnum
433Sport
Í gær

Mexíkó kynnir öryggisáætlun fyrir HM vegna óláta í landinu

Mexíkó kynnir öryggisáætlun fyrir HM vegna óláta í landinu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna

Tryggði kynfæri sín fyrir meira en 120 milljónir króna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Arsenal gæti þurft að framkvæma sársaukafulla sölu á stóru nafni í sumar

Arsenal gæti þurft að framkvæma sársaukafulla sölu á stóru nafni í sumar