fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
Pressan

Myndband: Blóðug slagsmál brutust út í farþegavél á leið til Manchester

Pressan
Föstudaginn 13. febrúar 2026 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Slagsmál brutust út um borð í farþegaþotu á leið frá Tyrklandi til Manchester í Englandi fyrir skömmu. Sökudólgarnir voru tveir breskir menn en tilraunir áhafnar og annarra farþega til að hafa hemil á mönnunum mögnuðu átökin upp í hópslagsmál.

Skelfingu lostin börn og aldraðir voru á meðal þeirra sem horfðu upp á ósköpin og farþegar vitna um að hafa séð blóð og lausar tennur í sætum eftir átökin.

Flugstjórinn neyddist til að breyta um leið og neyðarlenda í Brussel í Belgíu þar sem mennirnir tveir voru handteknir. Átökin munu hafa byrjað á því að annar mannanna reyndi að hrifsa síma hins úr höndum hans.

Farþegar vitna um að annar hinna handteknu hafi drukkið stíft og við haft rasísk ummæli. Hann lenti síðan í deilum við starfsfólk um borð viðvíkjandi sígarettum.

Flugfélagið Jet2 lýsir hegðun mannanna sem skelfilegri og segir að þeir séu komnir í ævilangt flugbann hjá félaginu.

Daily Mail birti meðfylgjandi myndband af slagsmálunum.

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
Pressan
Í gær

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð

Draumaferð hjónanna til Maldíveyja breyttist í algjöra martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins

Bandaríkjamenn sagðir hafna tillögu Rússlands um lausn Íransstríðsins
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Nýburi fannst í plastpoka árið 1981 – Áratugum síðar kom sannleikurinn í ljós

Nýburi fannst í plastpoka árið 1981 – Áratugum síðar kom sannleikurinn í ljós
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 4 dögum

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð

Reyndi að lina þjáningar móður sinnar – endaði í tveggja ára martröð