fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Dr. Gunni mölbrýtur þægindarammann

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 10:29

Helena og Dr. Gunni

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Lárus Hjálmarsson, Dr. Gunni, tilkynnir um miklar breytingar í lífi sínu: búferlaflutninga til kærustunnar og þar með, fyrstu búsetuna utan höfuðborgarinnar og nýtt starf.

„Nú stendur aldeilis mikið til í lífinu. Eftir þrjú ár sem fráskilinn karl á Laugavegi og átta ár sem fulltrúi í afgreiðslunni í Þjóðskrá er ég nú að mölbrjóta þægindarammann og hoppa út í djúpu laugina. Ég flyt til Helenu minnar í Fljótshlíð og verð leiðbeinandi og ritari í Grunnskólanum á Hellu! Nýtt líf! Nýjar áskoranir! Fyrsti vinnudagur á Hellu verður 23. febrúar svo þetta ber brátt að. Hef allt mitt líf búið á mölinni svo þetta verða eflaust viðbrigði, en það er svo sem ekki eins og ég verði algjörlega útí rassgati, ekki nema svona 90 mín að keyra í bæinn. Æðislega íbúðin mín á Laugarvegi leitar að góðum leigjendum.“

Kærasta Gunna er Helena Hansdóttir Aspelund myndlistarkona, sem rak áður Týsgallerí en starfar nú með eigin rekstur í ferðaþjónustu.

Parið hefur verið saman í þrjú ár og nú er næsta skref tekið í sambandinu.

Íbúð Gunna er á Laugavegi 5, 68,5 fm með sérbílastæði ekið inn frá Hverfisgötu. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Mánaðarleiga er 340.000 kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin