fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fókus

Kærastan tók framhjáhaldsjátningum norska ólympíukappans illa – „Erfitt að fyrirgefa“

Fókus
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 11:25

Sturla Holm Lægreid faðmar liðsfélaga sinn Ingrid Landmark Tandrevold. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eitt stærsta atvik Vetrarólympíuleikanna sem nú standa yfir í Mílanó og Cortina átti sér stað fyrir framan hljóðnemann en ekki á keppnisbrautunum. Norðmaðurinn Sturla Holm Lægreid hafði nýlokið við að tryggja sér bronsverðlaun í skíðaskotfimi þegar hann steig fram í viðtali og lýsti því yfir að hann væri miður sín yfir því að hafa haldið framhjá kærustu sinni til sex mánaða með annarri konu.

Játningin vakti heimsathygli en Lægreid sagðist harma hliðarsporið af öllu hjarta og þrá fyrirgefningu kærustunnar.

Kærastan, sem hefur ekki verið nafngreind, tók þó játningunni ekki vel. „Jafnvel eftir ástarjátningu fyrir framan alþjóð þá er erfitt að fyrirgefa,“ segir hún í samtali við norska blaðið VG.

„Ég kaus ekki að vera sett í þessa stöðu. Við höfum verið í sambandi og hann  [Lægreid] veit hver afstaða mín er,“ segir kærastan, sem þakkaði þó fyrir þann hlýhug sem að hún hefði upplifað úr öllum áttum.

Lægreid var síðan inntur eftir viðbrögðum og sagðist hann þá harma það að hafa varpað játningunni fram: „Ég dauðsé eftir því að hafa dregið fram þetta persónulega mál okkar á þessari sigurstund fyrir norska skíðaskotfimi. Ég er ekki alveg með sjálfum mér í dag og hugsa ekki skýrt,“ sagði ólympíuverðlaunahafinn.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“

„Óþægilegi nágranninn er að eyðileggja líf mitt“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“

Hrollvekjandi lýsingar Íslendinga af svefnrofalömun – „Sá hann stundum kíkja upp stigann eða fann hann leggjast niður á dýnuna við hliðina á mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“

„Þetta segir mér það að treysta ekki fólki nema ég gjörþekki það“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á

Íslensku lögin sem Laufey segir að allir verði að hlusta á
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“

„Ég kem úr fjölskyldu þar sem er mikið harðir karlmenn, þar sem er ekki mikið talað um svona hluti“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans

Bíó Paradís á meðal þeirra bestu á lista Time Out – Draumastaður bíóunnandans