fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Útgáfutónleikar Emils eru í kvöld

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 13. febrúar 2026 16:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Emil gefur út sína fyrstu stuttskífu (EP plötu) í dag. Gripurinn heitir Growing EP sem inniheldur lögin Growing, Spark, The Message og Blue Morning Sky. Um er að ræða persónulega indie folk stuttskífu sem minnir á hljóðheim listamanna á borð við Ásgeir Trausta og Ben Howard. Áður hefur Emil gefið út lagið Blue Morning Sky sem vakti mikla athygli þegar það hljómaði í CBS þáttunum The Darkness.

Með Emil á stuttskífunni kemur öflugt og reynslumikið tónlistrafólk við sögu. Sigurður Guðmundsson (Siggi Hjálmur) sá um upptökustjórn auk þess að spila á nokkur hljóðfæri. Daníel Friðrik Böðvarsson leggur til gítarleik og Kristinn Snær Agnarsson trommuleik. Útkoman er hlýleg og draumkennd hljóðmynd þar sem mjúk sönglína og einlæg textasmíði Emils fá að njóta sín.

Til að fagna útgáfu stuttskífunnar kemur Emil fram á útgáfutónleikum hennar í 12 Tónum í kvöld. Þar mun Emil flytja lög stuttskífunnar ásamt fleiri lögum. Eintök af stuttskífunni á vínyl verða til sölu á útgáfutónleikunum. Húsið opnar kl. 19.00 og tónleikarnir hefjast kl. 20.00.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Emil (@emilandri_)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin