fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Fókus

Gunnar Smári fór í bíó og grét – „Fyrir það myndi ég rétta henni Óskarinn“

Fókus
Mánudaginn 16. febrúar 2026 11:30

Gunnar Smári Egilsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjölmiðlamaðurinn Gunnar Smári Egilsson hefur gaman af góðum bíómyndum og hann skellti sér á eina um helgina sem vakti hjá honum hrifningu.

„Ég fór í bíó og grét yfir þessari fimm vasaklúta mynd, mikið held ég að það sé hollt,“ segir hann en myndin sem um ræðir heitir Hamnet og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Myndin er tilnefnd til átta Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta myndin.

Í stuttu máli gerist sagan á 16. öld og fylgir hún hjónunum Agnesi og William Shakespeare eftir að sonur þeirra, Hamnet, deyr í kjölfar veikinda. Hún skoðar hvernig missirinn mótar samband þeirra, líf þeirra og listsköpun Williams.

Auk þess að hljóta Óskarstilnefningu sem besta myndin er leikstjórinn Chloé Zhao tilnefnd og leikkonan Jessie Buckley sem fer með hlutverk Agnesar.

„Á leiðinni heim þakkaði ég fyrir þau öll sem ég hef fengið að elska og var þakklátur fyrir alla þá ást sem ég hef notið og fengið að gefa. Það hafa komið út snjallar bíómyndir á undanförnum mánuðum, merkilega margar, mögnuð sagnamennska og mikil list,“ segir Gunnar Smári.

Hann bætir við að þessi einfalda mynd gefi frá sér sterkar tilfinningar, djúpar og mannlegar, sem við þurfum mikið á að halda á þessum tíma „grimmdar og miskunnarleysis“ eins og hann orðar það.

„Fyrir það myndi ég rétta henni Óskarinn. Það er hollt að fara í jarðarför og gráta það sem maður hefur misst, þess sem maður saknar og það sem hefur mótað mann og nært. Það getur átt við svo margt í dag, einkanlegt og samfélagslegt. Við þurfum að endurreisa mannúðarstefnuna. Og hún byggir á sterkustu og gjöfulustu tilfinningum mannsins. Og þessi fallega mynd vekur þær og nærir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“

Vikan á Instagram: „Aldrei of gömul“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana

Elín Auður varð fyrir hrottalegu einelti í Garðaskóla – Kölluð öllum illum nöfnum og mat kastað í hana
Fókus
Fyrir 5 dögum

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“

Líf og útlit sjónvarpsstjörnunnar gjörbreytt – „Þegar þú giftist þá strengirðu heit“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið

Fær loksins nafnið sitt á Húsó en málinu langt í frá lokið
Fókus
Fyrir 6 dögum

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“

„Eru menn á miðjum aldri enn þá að vakna á sunnudegi með tvö ný tattoo?“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin

Drífa Viðar, Hvalbak og Silfurgengið hlutu Fjöruverðlaunin