TV2 hefur eftir talsmanni lögreglunnar að líklega hafi mótorhjólinu verið ekið á rúmlega 320 km/klst en leyfður hámarkshraði á veginum er 80 km/klst. Mesti hraði sem ratsjáin getur mælt er 320 km/klst.
Lögreglan reyndi að stöðva akstur ökumannsins í Dombås en án árangurs. Það tókst síðan að stöðva akstur hans í Sel í Innlandet. Hann var kærður fyrir of hraðan akstur út frá mælingum á meðalhraða hans á milli staðarins þar sem hann sást fyrst og þar til akstur hans var stöðvaður. Meðalhraðinn reyndist vera 218 km/klst.
Ökumaðurinn reyndist vera 25 ára Norðmaður.
Lögreglan lagði hald á mótorhjólið og farsíma mannsins til að geta aflað enn frekari sönnunargagna varðandi ofsaaksturinn.