fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Pressan

„Samþykkt af einræðisherra“ – Skúlptúr móðgar embætti forseta Bandaríkjanna

Pressan
Föstudaginn 20. júní 2025 16:30

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Embætti forseta Bandaríkjanna, gjarnan kennt við Hvíta húsið, hefur gefið frá sér yfirlýsingu út af skúlptúr sem hefur verið komið fyrir í National Mall-almenningsgarðinum í Washington til að mótmæla herskrúðgöngu sem fór fram í tilefni afmælis Donald Trump forseta.

Skúlptúrinn kallast „Samþykkt af einræðisherra“ og sýnir gyllta hönd með þumalinn upp, en höndin virðist hafa kramið sjálfa frelsisstyttuna. Á standi undir skúlptúrnum má svo sjá gyllta skildi með áletruðum tilvitnunum frá einræðisherrum sem hafa mært Trump. Til dæmis frá forseta Rússlands, Vladimir Pútín: „Trump forseti er mjög greindur og hæfileikaríkur maður“ og frá forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orban: „Virtasta og óttaðasta manneskjan er Donald Trump.“

Einnig er vitnað í fyrrverandi forseta Brasilíu, Jair Bolsonari: „Við deilum mörgum gildum. Ég dáist að Trump forseta“ og í einræðisherra Norður Kóreu, Kim Jong Un, sem talar um hugrekki Trump og þeirra sérstaka vinskap.

Skúlpturinn var reistur til að mótmæla afmælisskrúðgöngu Trump og hafði allra tilskilinna leyfa verið aflað fyrir honum.

Talsmaður Hvíta hússins, Abigail Jackson, segir í yfirlýsingu til The Post: „Ef þessir demókrataaðgerðarsinnar væru í alvörunni að lifa undir einræði þá stæði þessi ljóti skúlptur þeirra ekki í National Mall-almenningsgarðinum einmitt núna. Í Bandaríkjunum hefur þú frelsið til að sýna svokallaða list þína, sama hversu ljót hún er.“

Skúlptúrinn mun standa í garðinum fram á sunnudaginn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Stærsti getnaðarlimur heims – Stærðin eyðilagði fyrsta skiptið

Stærsti getnaðarlimur heims – Stærðin eyðilagði fyrsta skiptið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Er hollt að baða sig í ísköldu vatni eða sjó?

Er hollt að baða sig í ísköldu vatni eða sjó?
Pressan
Fyrir 3 dögum

Víðar nærbuxur – Betra sæði

Víðar nærbuxur – Betra sæði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Á þessum tímum dags áttu að taka snjallúrið af þér

Á þessum tímum dags áttu að taka snjallúrið af þér