Daily Star segir að þetta hafi gerst að morgni til á heimili hjónanna í Úkraínu þegar maðurinn kom heim. Vitni segja að Maria hafi verið þakin blóði eftir þetta.
Lögreglan segir að í yfirheyrslum hafi Maria sagt að eiginmaðurinn hafi beitt hana ofbeldi árum saman og hún hafi myrt hann til að binda enda á ofbeldið, þetta hafi verið eina leiðin fyrir hana til að losna út úr því.
Hún er sögð hafa kyrkt eiginmanninn, því næst hafi hún afhöfðað hann með öxi. Því næst náði hún sér í hníf og skar undan honum og gaf hundunum.