Eiginmaður hennar fór til vinnu klukkan 07 og klukkan 10.45 fannst lík hennar. Heimilið bar þess merki að átök hefðu átt sér stað. Mikið magn reiðufjár var horfið. Morðvopnið fannst í þvottakörfu á heimilinu.
Saksóknarar tilkynntu í síðustu viku að morðinginn hefði verið Joseph Leo Bourdreau sem lést 2004. Hann var 37 ára þegar hann myrti Brow.
Kenneth Waters var handtekinn ári eftir morðið og fundinn sekur um það 1983. Hann var látinn laus úr fangelsi 2001 eftir að rannsókn sýndi að það var ekki erfðaefni hans sem fannst í blóði á morðvettvanginum.
Þegar hann var handtekinn var DNA-tæknin ekki til staðar en Waters var í sama blóðflokki og morðinginn og á þeim grunni var hann sakfelldur.
Lögreglan tók málið aftur til rannsóknar 2022 og tókst þá að rekja slóðina til Boudreau eftir að niðurstaða DNA-rannsóknar lá fyrir.