

Í gær skrifuðu undir nokkrir ungir framtíðarleikmenn meistaraflokks kvenna undir samning við Val. Um er að ræða fyrstu samninga hjá þessum efnilegu knattspyrnukonum.
Allar eru þær að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki og eru meðal annars hluti af liði Vals sem varð Reykjavíkurmeistari nýlega.
Þær sem skrifuðu undir samning í gær eru Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving fædd 2002 sem gerir 2 ára samning, Ísabella Anna Húbertsdóttir fædd 2002, Signý Ylfa Sigurðardóttir fædd 2001, Lea Björt Kristjánsdóttir fædd 2000, Ragna Guðrún Guðmundsóttir fædd 2002 og Hallgerður Kristjánsdóttir fædd 2001, allar gera þær 3 ára samning.