fbpx
Föstudagur 05.júní 2026
433Sport

Víðir furðar sig á umræðu í sjónvarpinu í gær – „Þeim láðist hins vegar að geta þess“

433
Miðvikudaginn 1. apríl 2026 08:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Víðir Sigurðsson, einn fremsti íþróttafréttamaður landsins, sem starfaði á Morgunblaðinu um árabil þar til fyrir skemmstu, skrifaði skemmtilegan pistil á Facebook í gær í kringum landsleik Íslands og Haítí.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Víðir birti pistilinn fyrir leik og fannst sérfræðingar Sýnar, Kári Arnason og Bjarni Guðjónsson, vanmeta lið Haítí, sem er á leið á HM í sumar.

„Sérfræðingar Sýnar töluðu Haití full mikið niður fyrir leikinn í dag og tíndu þar til smáþjóðir sem Haití hafði sigrað í undankeppninni. Þeim láðist hins vegar að geta þess að í úrslitariðli Norður- og Mið-Ameríku hirti Haití HM-sætið á kostnað Kosta Ríka og Hondúras sem hafa verið í hópi sterkustu liða svæðisins.

Haití teflir m.a. fram tveimur leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni og mörgum fleirum úr sterkum deildum og Ísland mætir því hörkuliði í Toronto, liði þar sem allir eru að slást um sæti í hópnum sem fer á heimsmeistaramótið í sumar,“ skrifaði Víðir til að mynda.

Í pistlinum rifjaði hann einnig upp þær fáu viðureignir sem Ísland hefur átt við lið frá Karíbahafinu, meðal annars vináttulandsleik við Trínidad og Tóbagó í London 2006, hvar Víðir var viðstaddur.

„Það var snemma árs 2006 þegar íslenska liðið fór til London og lék þar gegn Trínidad og Tóbagó á Loftus Road, heimavelli Queen’s Park Rangers. Lið TT var þá á leið í lokakeppni HM í fyrsta sinn og stemningin var gríðarleg með liðinu, eyjaskeggjar búsettir í London troðfylltu völlinn og fögnuðu vel 2-0 sigri sinna manna. Dwight Yorke, sem margir muna eftir sem leikmanni Manchester United, skoraði bæði mörkin.

Þegar sá sem þetta skrifar mætti á Loftus Road til að fjalla um leikinn á sínum tíma gekk hann inn í hreinræktaða þjóðhátíðarstemmningu fólksins frá Trínidad og Tóbagó fyrir utan leikvanginn þar sem dans og söngur settu skemmtilegan svip á aðdraganda leiksins.“

Úr leiknum umrædda á Loftus Road. Getty Images

Þennan skemmtilega pistil má lesa í heild hér að neðan:

Miðað við styrkleikalista FIFA á að vera lítill munur á landsliðum Íslands og Haití sem eru í þann veginn að hefja vináttulandsleik karla í fótbolta í Toronto í Kanada. Á heimslistanum situr Ísland í 75. sæti en Haití er átta sætum neðar, í 83. sætinu.

Haití er hins vegar á leiðinni á HM 2026 í sumar, í annað sinn í sögu þjóðarinnar. Samkvæmt áðurnefndum styrkleikalista á Haití að vera þriðja besta landslið Karíbahafsins, á eftir Jamaíku (69. sæti) og Curacao (82. sæti).

Curacao mun einnig leika á HM í sumar og Jamaíka spilar einmitt í kvöld úrslitaleik í umspili um HM-sæti gegn Lýðveldinu Kongó þar sem fyrrverandi lærisveinar Heimis Hallgrímssonar eiga möguleika á að tryggja sér HM-farseðlana.

Sérfræðingar Sýnar töluðu Haití full mikið niður fyrir leikinn í dag og tíndu þar til smáþjóðir sem Haití hafði sigrað í undankeppninni. Þeim láðist hins vegar að geta þess að í úrslitariðli Norður- og Mið-Ameríku hirti Haití HM-sætið á kostnað Kosta Ríka og Hondúras sem hafa verið í hópi sterkustu liða svæðisins.

Haití teflir m.a. fram tveimur leikmönnum úr ensku úrvalsdeildinni og mörgum fleirum úr sterkum deildum og Ísland mætir því hörkuliði í Toronto, liði þar sem allir eru að slást um sæti í hópnum sem fer á heimsmeistaramótið í sumar.

Haiti er aðeins þriðja þjóðin úr Karíbahafinu sem Ísland mætir í landsleik karla í fótbolta. Sem er dálítið merkilegt því alls er 31 þjóð úr þessum heimshluta innan vébanda Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, og af þessu svæði koma flestar þjóðirnar í Concacaf, Knattspyrnusambandi Norður- og Mið-Ameríku.

Áður hefur Ísland fjórum sinnum mætt liði Bermúda í vináttulandsleikjum og einu sinni liði Trínidad og Tóbagó. Þar með er það upptalið en lítum aðeins betur á þessi samskipti Íslendinga við eyþjóðirnar sólríku.

Ísland átti góð samskipti við Bermúda á sjöunda áratug síðustu aldar og þjóðirnar mættust þrisvar, fyrst árið 1964 og svo tvisvar árið 1969.

Ísland vann fyrsta leikinn, 4-3, á Laugardalsvellinum sumarið 1964 þar sem KR-ingarnir Ellert B. Schram og Þórólfur Beck skoruðu tvö mörk hvor.

Bermúdamenn mættu aftur í Laugardalinn fimm árum síðar, 1969, og Ísland vann aftur, nú 2-1. Ellert var aftur á skotskónum, sem og Skagamaðurinn Matthías Hallgrímsson.

Íslendingar endurguldu Bermúdamönnum heimsóknina og mættu þeim í Hamilton, höfuðstað eyjarinnar, sama haust. Þá hafði Bermúda betur, 3-2, en Matthías skoraði aftur, sem og Björn Lárusson, félagi hans frá Akranesi.

Síðan leið 21 ár en árið 1990 mætti íslenska landsliðið aftur til Hamilton og vann þá öruggan sigur, 4-0. Pétur Pétursson úr KR skoraði tvö mörk, Pétur Ormslev úr Fram eitt og Kjartan Einarsson úr KA eitt.

Frá þeim leik og þar til Ísland og Haití mættust í Kanada í dag hafði Ísland aðeins einu sinni leikið gegn liði úr Karíbahafinu. Það var snemma árs 2006 þegar íslenska liðið fór til London og lék þar gegn Trínidad og Tóbagó á Loftus Road, heimavelli Queen’s Park Rangers. Lið TT var þá á leið í lokakeppni HM í fyrsta sinn og stemningin var gríðarleg með liðinu, eyjaskeggjar búsettir í London troðfylltu völlinn og fögnuðu vel 2-0 sigri sinna manna. Dwight Yorke, sem margir muna eftir sem leikmanni Manchester United, skoraði bæði mörkin.

Þegar sá sem þetta skrifar mætti á Loftus Road til að fjalla um leikinn á sínum tíma gekk hann inn í hreinræktaða þjóðhátíðarstemmningu fólksins frá Trínidad og Tóbagó fyrir utan leikvanginn þar sem dans og söngur settu skemmtilegan svip á aðdraganda leiksins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick

Pogba tjáir sig um ráðningu United á Carrick
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku

Enska landsliðið spilar æfingaleik á ömurlegum velli – Grasið var lagt í síðustu viku
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Guardiola hótaði því 100 sinnum að segja upp hjá City

Guardiola hótaði því 100 sinnum að segja upp hjá City
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár

Segir frá því hvað gerðist eftir að hann hafði drukkið óhóflega af áfengi í mörg ár
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Spilað þrjá leiki á fimm árum en skrifar undir nýjan samning – Hefur sérstaklega hjálpað þessum leikmanni United

Spilað þrjá leiki á fimm árum en skrifar undir nýjan samning – Hefur sérstaklega hjálpað þessum leikmanni United
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða

Fyrsta tilboði hafnað en viðræður halda áfram – Eigandinn gæti verið til vandræða
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Ber töluvert í milli er kemur að verðmiðanum á Cucurella

Ber töluvert í milli er kemur að verðmiðanum á Cucurella
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Slot áfram í ensku úrvalsdeildinni eftir allt saman?

Slot áfram í ensku úrvalsdeildinni eftir allt saman?