

Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður og skákmeistari, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikuna.
Björn hefur miklar taugar til Fram og sér hann liðið gera góða hluti á tímabilinu í Bestu deildinni.
„Ég get séð þá ná á pall,“ sagði hann og Tómas kvaðst einnig hrifinn. „Þetta er fínn hópur. Ég þekki flesta og það er ágætis merki um það.“
Helgi telur að deildin hafi spilast þannig að pláss hafi opnast í Evrópubaráttunni fyrir fleiri lið en þau sem hafa barist um þau síðustu ár.
„Maður hefur spurt sig hversu langt Rúnar getur farið með þetta lið en miðað við hvernig þetta er að spilast, ef við horfum í önnur lið, það er alveg að myndast pláss fyrir óvænt Evrópulið.“
Nánar í spilaranum.