
Jason Daði Svanþórsson er á förum frá enska D-deildarliðinu Grimsby þegar samningur hans rennur út í næsta mánuði.
Félag hans staðfestir þetta, en Jason er að klára sitt annað tímabil þar. Mosfellingurinn hefur lítið spilað á þessari leiktíð vegna meiðsla.
Jason, sem er 26 ára gamall, kom til Grimsby frá Breiðabliki sumarið 2024, en hann hafði spilað stóra rullu í Kópavoginum.
Ljóst er að lið hér heima horfa til kantmannsins nú þegar hann er á lausu.
The club would like to thank all departing players for their efforts whilst representing the Mariners and wish them all the very best for the future. 🙌#GTFC pic.twitter.com/8LAWCv7E4S
— Grimsby Town F.C. (@officialgtfc) May 19, 2026