

Arnar Grétarsson, fótboltaþjálfari til margra ára og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Arnar þjálfaði KA fyrir norðan um skeið og varð var við umræðuna um Bogann, knatthúsið á Akureyri, en margir þjálfarar vilja helst ekki spila þar vegna meiðslahættu.
„Þegar ég var að þjálfa þarna voru dæmi um að menn sendu ekki liðin sín norður því þeir vildu ekki spila í Boganum.
Svo vorum við í KA og Þór að æfa þarna 3-4 sinnum í viku alltaf. Ég held að hann sé ekkert verri en aðrir vellir og mér finnst þetta smá virðingarleysi við keppnina,“ sagði Arnar.
Nánar í spilaranum.