
Miði á úrslitaleik HM vestan hafs í sumar er til sölu á 1,4 milljarða. Fjallað er um þetta í enskum miðlum.
Úrslitaleikurinn fer fram á MetLife Stadium í New Jersey 19. júlí 2026, en völlurinn rúmar yfir 82 þúsund áhorfendur.
Mikil eftirspurn hefur verið eftir miðum, og FIFA hefur fengið yfir 500 milljón beiðnir um miða, samkvæmt forseta sambandsins, Gianni Infantino.
Athygli vekur að miðinn sem um ræðir er hefðbundinn og án nokkurra fríðinda. Er hann þá nokuð langt frá vellinum. Verður að teljast ólíklegt að hann seljist á þessu verði.
Opinber verð á úrslitaleikinn eru mun lægri, þó eru þar miðar til sölu á vel rúmlega milljón. Þeir fara svo mun dýrar en það á endursölu.