
Ensk lið eru í úrslitaleik allra þriggja Evrópukeppnanna, Meistaradeild, Evrópudeild og Sambandsdeild, í fyrsta sinn.
Arsenal komst í úrslit Meistaradeildarinnar eftir sigur á Atletico Madrid, Aston Villa tryggði sér sæti í úrslitum Evrópudeildarinnar með sannfærandi sigri á Nottingham Forest og Crystal Palace fór í úrslit Sambandsdeildarinnar eftir að hafa slegið út Shakhtar Donetsk.
Villa mætir Freiburg í úrslitum Evrópudeildarinnar í Istanbúl 20. maí, á meðan Crystal Palace leikur gegn Rayo Vallecano í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar 27. maí.
Þetta er þó ekki einsdæmi. Ítalía hefur áður átt lið í úrslitum allra Evrópukeppna á sama tímabili, síðast árið 2023 þegar Inter, Roma og Fiorentina fóru öll í úrslit, þó ekkert þeirra hafi unnið þegar þangað var komið.
Þá unnu ítölsk lið allar þrjár Evrópukeppnirnar tímabilið 1989–1990 þegar AC Milan, Juventus og Sampdoria fögnuðu sigrum.
Spánn hefur einnig átt fulltrúa í öllum úrslitaleikjunum á sama ári.